Handbolti

Norska handboltastjarnan með krabba­mein

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Camilla Herrem var fastmaður í norska landsliðinu í þjálfaratíð Þóris Hergeirssonar.
Camilla Herrem var fastmaður í norska landsliðinu í þjálfaratíð Þóris Hergeirssonar. Getty/Maja Hitij

Norska handboltakonan Camilla Herrem sagði frá því í kvöld að hún sé með brjóstakrabbamein.

„Fyrir þremur og hálfri viku síðan þá fann ég lítinn hnúð í brjóstinu mínu. Kannski var hans jafnstór og baun. Ég hugsaði strax um að láta athuga þetta,“ sagði Camilla Herrem á samfélagsmiðlum sínum.

Herrem fór í brjóstamyndatöku, ómskoðun og það var tekið vefjasýni úr hnúðnum. Þá kom í ljós að hún væri með krabbamein í brjóstinu.

Hún fékk símtal frá sjúkrahúsinu og var beðin að koma þangað þar sem hún fékk tíðindin.

Herrem er 38 ára gömul og hefur lengi verið í hópi bestu vinstri hornamanna heims.

Hún hefur spilað með Sola í heimalandinu frá árinu 2017 en var þar áður atvinnumaður á meginlandi Evrópu.

Herrem var í Evrópumeistaraliði Norðmanna í desember síðastliðnum en tilkynnti eftir mótið að landsliðsskórnir væru komnir upp á hillu.

Herrem vann alls sautján verðlaun með norska landsliðinu á stórmótum þar af ellefu gullverðlaun. Hún vann tvisvar Ólympíugull, þrjá heimsmeistaratitla og sex Evrópumeistaratitla.

Herrem skoraði alls 951 mark í 332 leikjum með norska landsliðinu.

Hér fyrir neðan má hlusta á Herrem segja frá þessu en auðvitað á norsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×