Viðskipti innlent

Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri fram­leiðslu

Árni Sæberg skrifar
Margir kannast eflaust við Atla Óskar af skjánum.
Margir kannast eflaust við Atla Óskar af skjánum.

Akademias hefur ráðið Atla Óskar til að stýra rekstri framleiðsludeildar Akademias en Akademias framleiðir rafræn námskeið, verkefni og leiki fyrir starfsmannaþjálfun á vinnustöðum

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Atli hafi lokið gráðu í leiklist og kvikmyndagerð í Los Angeles árið 2017. Hann hafi verið tilnefndur tvívegis til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn og hafi verið valinn í hina virðulegu „Shooting Stars“ dagskrá á Berlinale kvikmyndahátíðinni árið 2016. Atli hafi komið að fjölda stórra framleiðsluverkefna fyrir ýmis fyrirtæki í kvikmyndabransanum hérlendis og erlendis. Til viðbótar sé Atli nú að vinna að meistararannsókn í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.

„Atli kemur með mikla reynslu og þekkingu inní framleiðsluna okkar. Það hefur verið mikill vöxtur í framleiðslunni okkar en sífellt fleiri vinnustaðir eru að uppgötva hagræðið og kraftinn sem felst í starfsmannaþjálfun með rafrænni fræðslu. Undanfarin fjögur ár hefur Akademias framleitt yfir 350 námskeið fyrir um 150 viðskiptavini. Við stöndum líka á miklum tímamótum í þróun á rafrænu námsefni þar sem gervigreind, leikir og gagnvirk verkefni eru farin að spila sífellt stærri þátt,“ er haft eftir Guðmundi Arnari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Akademias. 

Haft er eftir Atla að hann sé spenntur fyrir nýju hlutverki: „Það er mikill kraftur í teyminu hjá Akademias og er ég fullur tilhlökkunnar til að takast á við þetta nýja hlutverk og styðja við frekari vöxt og þróun.“

Akademias hafi mikla reynslu af fjölbreyttri framleiðslu fyrir allar atvinnugreinar. Í samstarfi við viðskiptavini framleiði þau til að mynda nýliða-, öryggis-, gæða-, þjónustu- og sölunámskeið ásamt kennslu í mismunandi kerfum. Framleiðsluteymi Akademias geri viðskiptavinum kleift að fá rafrænt námsefni með lágmarksfyrirhöfn og kostnað að leiðarljósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×