„Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. júlí 2025 21:09 Eftir erfitt ár í Kanada var Shaina Ashouri ekki lengi að stimpla sig inn í endurkomunni til Íslands og skoraði opnunarmarkið í 2-1 sigri Víkings gegn Stjörnunni í kvöld. „
Mjög gott að ná sigri strax í fyrsta leik, hér á heimavelli, þetta skiptir mig meira máli en nokkuð annað“ sagði hún svo og dró ekkert úr gleðinni. Shaina sneri aftur til Víkings í sumarglugganum eftir að hafa verið hjá Toronto í kanadísku deildinni síðasta árið „Það er erfitt að koma því í orð, en þegar ég fór… Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur“ sagði hún og virtist eiga erfitt með að tala um árið sem er að baki í Kanada. En Shaina er mætt aftur í Víkina og líður að eigin sögn eins og hún sé komin heim. Tímabilið hefur verið erfitt hjá Víkingi en hún kemur til með að styrkja hópinn heilmikið og trúir því að liðið geti lyft sér upp úr fallsæti. „Þetta var fyrsta skrefið í rétta átt og við munum halda áfram að stíga þessi skref, leik fyrir leik. Okkar markmið eru skýr og tímabilið er langt frá því að vera búið.“ Hjá Víkingi hittir hún ekki sama þjálfara og var síðast þegar hún spilaði fyrir liðið, en Shainu líst vel á Einar Guðnason. „Þetta hefur verið frábært að fá hann inn, mjög góður andi í hópnum og stelpurnar trúa á verkefnið. Við erum með gott plan í gangi, sem þjálfararnir hafa stillt upp og sjá um að útfæra. Þetta er allt á réttri leið“ sagði Shaina, sem lofaði svo að halda áfram að skora fyrir Víking.
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Körfubolti „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Fleiri fréttir Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Sjá meira