Ákvörðunin að reka Horner að mestu vegna slaks árangurs Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. júlí 2025 20:15 Eftir hvern heimsmeistaratitilinn á fætur öðrum var Horner látinn fara þegar halla fór undan fæti. Kym Illman/Getty Images Christian Horner var látinn fara sem liðsstjóri Red Bull í Formúla 1 kappakstrinum eftir meira en 20 ár við stjórnvölin. Ráðgjafi félagsins segir að ákvörðunin sé að mestu byggð á slökum árangri liðsins að undanförnu.
Frægðarsól hins 51 árs gamla Horner reis hátt þökk sé Formúlu 1 þáttunum á Netflix. Þá giftist hann Kryddpíunni fyrrverandi, Geir Halliwell, árið 2015. Á síðasta ári var Horner yfirheyrður vegna ásakana um óviðeigandi hegðun. Á endanum var Horner hreinsaður af ásökunum og hann hélt starfi sínu, um tíma allavega. Það var svo 16 mánuðum síðar sem Horner var látinn taka poka sinn. Segja má að tíðindin hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Nú hefur Helmut Marko, sérstakur ráðgjafi Red Bull, tjáð sig við þýska arm Sky Sports. Hann segir að ákvörðunin að reka Horner hafi verið byggð á mörgum mismunandi þáttum en sá helsti var slakur árangur á kappakstursbrautinni. Laurent Mekies tók við starfi Horner. Hann hafði áður rekið Racing Bulls, hálfgert ungingastarf Red Bull-liðsins. Hans verkefni er nú að brúa bilið að McLaren sem hefur borið af á yfirstandandi keppnistímabili.
Akstursíþróttir Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira