Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Kjartan Kjartansson skrifar 21. ágúst 2025 10:28 Höfuðstöðvar Morgunblaðsins, Þórsmerkur og Árvarkur í Hádegismóum. Tilgangur Árvakurs er sagður að „styðja frjálst viðskiptalíf og efla heilbrigðian hugsunarhátt í öllum þjóðfélagsmálum“. Vísir/Vilhelm Einkahlutafélagið Þórsmörk sem á meðal annars útgáfufélag Morgunblaðsins tapaði um 340 milljónum króna í fyrra. Hlutafé var aukið um rúmar 266 milljónir í fyrra og heimild var nýlega veitt til að auka það um allt að 600 milljónir króna.
Þórsmörk á nær allt hlutafé í Árvakri hf., útgefanda Morgunblaðsins, og fjórum öðrum félögum að öllu eða langmestu leyti, þar á meðal prentsmiðju blaðsins og Póstdreifingu ehf. Tap samstæðu Þórsmerkur nam um 348,5 milljónum króna í fyrra en móðurfélagsins sjálfs 340,1 milljón króna samkvæmt ársreikningi félagsins. Móðurfélagið tapaði meira en tvölfalt meiru árið 2024 en árið áður þegar tapið nam 149,2 milljónum króna. Eigið fé nam rúmum 753 milljónum króna og eiginfjárhlutfall 38 prósentum. Hlutfallið lækkaði um rúm þrjú prósentustig á milli ára. Skuldir félagsins námu tæpum 3,3 milljörðum í fyrra og hækkuðu um tæpar 140 milljónir á milli ára. Félagið greiðir ekki tekjuskatt í ár þar sem tekjuskattstofn þess var neikvæður. Árvakur sjálfur tapaði 276,7 milljónum króna í fyrra samkvæmt ársreikningi hans. Jókst tapið um tæpar 237 milljónir króna frá árinu 2023. Þórsmörk á 99,71 prósent hlutafjár í Árvakri en Legalis sf., félag Sigurbjörns Magnússonar, eins eigenda lögfræðistofunnar Juris og stjórnarformanns Árvakurs í áraraðir, á 0,29 prósent. Stjórnendur Ísfélagsins koma inn Hlutafé í Þórsmörk var aukið um 266 milljónir króna á árinu. Nokkrir af stærstu einstöku hluthöfunum bættu við sig hlutafé, þar á meðal Íslenskar sjávarafurðir, Hlynur A ehf og Í fjárfestingar ehf. Hluthöfum í félaginu fjölgaði um tvo í fyrra og eru þeir nú fjórtán. ÍV fjárfestingafélag er nú orðið fjórði stærsti hluthafi Þórsmerkur með rúmlega 13 prósent hlut. Það félag er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur útgerðarkonu úr Vestmannaeyjum og fjölskyldu. Félagið var óbeinn hluthafi í Þórsmörk árið 2023 í gegnum Ísfélagið sem er ekki lengur á meðal hluthafa Þórsmerkur. Guðbjörg og fjölskylda eiga einnig Hlyn A. Samtals eiga félögin tvö í þeirra eigu um þriðjung hlutafjár í Þórsmörk. Guðbjörg Matthíasdóttir hefur lengi verið helsti fjárhagslegi bakhjarl Morgunblaðsins.Nasdaq Iceland Þá bættist Marteinn Haraldsson ehf., útgerðarfélag sem er meðal annars í eigu Ólafs Helga Marteinssonar, aðstoðarforstjóra Ísfélagsins og fyrrverandi formanns Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Gunnar Sigvaldason, stjórnarmaður og hluthafi í Ísfélaginu, í hóp tíu stærstu hluthafa Þórsmerkur í fyrra. Fari ehf., félag Jóns Pálmasonar sem á meðal annars húsgagnaverslunina IKEA, er nú einnig á listanum yfir helstu hluthafa Þórsmerkur. Félagið á rúmlega hálf prósent. Ramses II, félag Eyþórs Arnalds, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, er enn á lista yfir tíu stærstu hluthafa Þórsmerkur. Heimild til að hækka hlutafé um 600 milljónir Aðalfundur Þórsmerkur samþykkti í lok maí að breyta samþykktum félagsins þannig að stjórn þess fái heimild til þess að hækka hlutafé um allt að 600 milljónir króna að nafnvirði. Í fyrri samþykkt félagsins var heimild til að hækka hlutaféð um 133,4 milljónir króna. Stjórn félagsins lagði til við aðalfund að ekki yrði greiddur út arður og að tap félagsins í fyrra yrði flutt til næsta árs.
Fjölmiðlar Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira