Heljarmennið sem fagnaði eins og Schwarzenegger Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2025 15:45 Federico Baschirotto lítur út eins og vaxtarræktarkappi. Nýliðar Cremonese í ítölsku úrvalsdeildinni fengu óskabyrjun á tímabilinu er þeir unnu AC Milan á San Siro, 1-2. Varnarmaður Cremonese sló í gegn í leiknum.
Federico Baschirotto stóð vaktina í vörn Cremonese og lét líka til sín taka á hinum enda vallarins. Hann kom gestunum yfir á 28. mínútu með skallamarki. Baschirotto er naut að burðum og fagnaði markinu með frægri „pósu“ eins og annað heljarmenni, sjálfur Arnold Schwarzenegger. Inserimento e incornata perfetta di Federico Baschirotto che sblocca #MilanCremonese 0-1! pic.twitter.com/b2bJhQQOkj— Lega Serie A (@SerieA) August 23, 2025 Baschirotto átti einnig þátt í sigurmarki Cremonese sem Federico Bonazzoli skoraði með glæsilegri klippu. Bonazzoli hefur eflaust ekki leiðst að skora gegn Milan en hann er stuðningsmaður erkifjendanna í Inter. Cremonese hafði aldrei unnið fyrsta leik sinn á tímabili í efstu deild en breyting varð á því um helgina. Baschirotto er uppalinn hjá Cremonese og var á mála hjá félaginu til 2019 en spilaði aldrei fyrir það. Baschirotto lék með Lecce á árunum 2022-25 og átti stóran þátt í því að liðið hélt sér í ítölsku úrvalsdeildinni þrjú tímabil í röð. Massimiliano Allegri stýrði Milan í fyrsta sinn í ellefu ár um helgina. Hann tók aftur við liðinu í sumar en hann stýrði því áður á árunum 2010-14 og gerði það að ítölskum meisturum 2011.
Ítalski boltinn Vaxtarrækt Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti Man. City verður meistari Sport „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Sjá meira