Viðskipti innlent

Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Egill Sigurjónsson er nýr framkvæmdastjóri Solid Clouds.
Egill Sigurjónsson er nýr framkvæmdastjóri Solid Clouds.

Egill Örn Sigurjónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Solid Clouds hf. framleiðanda tölvuleiksins Starborne Frontiers. Hann tekur við starfinu af Stefáni Gunnarssyni sem gegnt hefur starfinu undanfarin ár en lét af störfum í síðustu viku með samkomlagi við stjórn Solid Clouds.

Egill er með MBA gráðu frá University of Cambridge auk þess að vera með BSc gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað í leikjaiðnaði bæði á Íslandi og erlendis meðal annars hjá breska leikjafyrirtækinu Jagex útgefanda RuneScape sem er einn stærsti fjölspilunarleikur heims. Síðan árið 2020 hefur hann starfað sem framleiðandi hjá Solid Clouds hf og leitt framleiðslu leikja félagsins.

„Það er mikill heiður að fá að leiða Solid Clouds hf á þessum tímamótum. Starborne Frontiers er metnaðarfullur leikur með mikla vaxtamöguleika á hratt stækkandi alþjóðlegum leikjamarkaði”, segir Egill Örn Sigurjónsson, nýr framkvæmdastjóri Solid Clouds hf, í tilkynningu.

„Egill hefur lengi verið lykilmaður hjá félaginu og sýnt í verki að hann hefur burði til að leiða það áfram. Stjórn Solid Clouds er sannfærð um að hann muni stýra félaginu af krafti inn í næsta vaxtarskeið,“ segir Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður Solid Clouds hf.


Tengdar fréttir

Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg

Tom er stjarneðlisfræðingur og einn hæfileikaríkasti spilari í heimi í íslenska tölvuleiknum Starborne: Frontier. Tom er búsettur í Adelaide í Ástralíu og flaug alla leiðina til Íslands til þess að heimsækja félaga sína hjá tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds á Eiðistorgi og hitta aðra spilara leiksins.

Fyrst­a skipt­i sem skrán­ing á Aðal­list­a heppn­ast ekki

Það var áhugi á að fá Íslandshótel á hlutabréfamarkað en ekki á því gengi sem var í boði við núverandi aðstæður. Innlánsvextir eru háir, fjárfestar hafa lagt ríflegt fé í hlutafjárútboð að undanförnu og því mikið fé „tekið af borðinu“ og horfur í ferðaþjónustu eru hóflegar fyrir sumarið. „Hvað á ég að selja til að fjárfesta í hótelkeðjunni?“ spurðu viðskiptavinir miðlara en í ljósi þess hve mörg önnur félög eru hagstætt verðlögð um þessar mundir var oft fátt um svör.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×