Glódís ekki enn spilað á tímabilinu Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2025 14:08 Glódís Perla Viggósdóttir lék síðast fótbolta þegar hún spilaði með Íslandi á EM í Sviss í júlí. Getty/Noemi Llamas Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands og Bayern München, bíður enn eftir því að hefja nýtt tímabil með Bayern vegna glímu við meiðsli. Hún gat því ekki mætt Emilíu Kiær Ásgeirsdóttur í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag.
Án Glódísar vann Bayern þó öruggan 3-0 útisigur á Leipzig í dag. Lena Oberdorf skoraði tvö mörk, á 10. og 57., mínútu, og Vanessa Gilles þriðja markið í lok leiks. Emilía kom inn á hjá Leipzig þegar fimm mínútur voru til leiksloka en gat litlu breytt á þeim tíma. Glódís hefur nú misst af fyrstu tveimur deildarleikjum Bayern sem og leiknum við Wolfsburg í þýska ofurbikarnum. Á heimasíðu Bayern var sagt frá því að hún væri að glíma við hnémeiðsli og má ætla að þar gæti verið um að ræða sömu meiðsli og hún glímdi við á seinni hluta síðustu leiktíðar, þegar beinmar á lærisbeini, við hnéð, hélt henni frá keppni í fyrsta sinn á ferlinum. Miðað við frétt Bayern fyrir leikinn við Leipzig í dag er Glódís þó á batavegi því ekki er sagt þar að hún sé meidd lengur heldur að hún sé eftir á í æfingum, eftir meiðsli sín. Rúmur mánuður er í afar mikilvæga leiki íslenska landsliðsins sem spilar við Norður-Írland um að halda sér í A-deild Þjóðadeildarinnar, áður en keppt verður um HM-sæti á næsta ári.
Þýski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Í beinni: Valur - Haukar | Toppslagur og Valsmenn eiga harma að hefna Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fleiri fréttir Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Sjá meira