Tekur marga milljarða með sér og gæti snúið aftur með öðru liði Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. september 2025 12:30 Christian Horner kvaddi Red Bull formlega í dag, þrettán milljörðum ríkari. Bob Kupbens/Icon Sportswire via Getty Images Red Bull hefur formlega gengið frá brottrekstri fyrrum liðsstjórans Christian Horner með margra milljarða króna starfslokagreiðslu. Líklegt þykir að Horner nýti nýfengið fé til að eignast hlut í einhverju öðru Formúlu 1 liði.
Horner var látinn fara í sumar eftir tuttugu ár sem liðsstjóri Red Bull, en enginn hefur sinnt slíku starfi lengur. Ástæða brottrekstursins var ekki gerð opinber en hneykslismál tengd Horner og hegðun hans í garð starfsmanna blússuðu upp fyrir rúmu ári síðan. Þá átti hann í mjög stirðu sambandi við föður Max Verstappen. Auk þess hefur árangur liðsins verið undir væntingum á þessu tímabili, Red Bull var langt á eftir McLaren þegar Horner var látinn fara en nýja liðstjóranum Laurent Mekies hefur tekist að brúa bilið aðeins, með góðri hjálp Max Verstappen sem hefur unnið síðustu tvær keppnir í Aserbaísjan og Ítalíu. Red Bull tilkynnti svo í morgun, rúmum tveimur mánuðum eftir að Horner var rekinn, að starfslokasamningurinn væri nú að fullu frágenginn. Breska ríkisútvarpið segir Red Bull hafa greitt Horner 52 milljónir punda, um átta og hálfan milljarð króna, við starfslok en The Times greinir frá því að hann hafi fengið 80 milljóna punda starfslokagreiðslu, sem jafngildir rúmum 13 milljörðum króna. Ljóst er allavega að hann er mörgum milljörðum ríkari og talið er að hann muni snúa aftur á Formúlubrautina á næsta ári, þegar sex mánaða uppsagnarákvæði í samningi hans við Red Bull rennur út. Horner myndi hins vegar ekki snúa aftur eingöngu sem liðsstjóri heldur sem hluteigandi. Svipað hefur sést hjá Mercedes og Aston Martin, þar sem liðsstjórarnir Toto Wolff og Lawrence Stroll eiga hlut. Alpine er talinn líklegur áfangastaður hjá Horner.
Akstursíþróttir Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira