Ragnar er fyrir ofan bankastjórann í Fantasy-deild Kaupþings Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. september 2025 14:02 Benedikt Gíslason og Ragnar Jónasson eru saman í Fantasy-deild. vísir/vilhelm Metsöluhöfundurinn Ragnar Jónasson var gestur Fantasýnar, hlaðvarps Sýnar um Fantasy-leik ensku úrvalsdeildarinnar. Þar greindi hann meðal annars frá því að hann væri fyrir ofan bankastjóra Arion banka í Fantasy-deild þeirra.
Ragnar er einn af fremstu Fantasy-spilurum landsins og er í 4. sæti í Sýnar-deildinni þar sem allir íslenskir fantasy-spilarar eru sjálfkrafa með. Fantasýnar-strákarnir, þeir Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban, ræddu við Ragnar um góða byrjun hans á tímabilinu í nýjasta þætti hlaðvarpsins. Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan eða með því að smella hér. Ragnari hefur gengið betur í Fantasy í vetur en undanfarin tímabil. Hann fór yfir það hvað hefur breyst hjá sér í ár. „Ég er ekki að vinna lengur í banka eða innan um fólk. Um leið og áreitið minnkar dags daglega gleymir maður þessu. Oft byrjar maður af miklum áhuga í ágúst á hverju ári, að stilla upp liði og vanda sig og svo þegar líður á gleymist þetta og maður er dottinn niður töfluna og hættir að spá í þessu,“ sagði Ragnar. Margir vinahópar og vinnustaðir eru með sér Fantasy-deildir, og meðal annars hópur fólks sem vann í Kaupþingi á sínum tíma. „Við byrjuðum þetta þegar við vorum í Kaupþingi í gamla daga. Þá þurfti sá sem var neðstur í hverri viku að vera með apa á borðinu sínu. Þetta var mjög hvetjandi,“ sagði Ragnar sem gengur vel í Kaupþingsdeildinni og er efstur þar. Í 2. sætinu er Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. „Hann er hæfilega langt á eftir mér en hann er góður í þessu. Við Benni erum að koma aðeins á óvart. Yfirleitt erum við neðar í töflunni en eitthvað er að gerast þetta árið.“ Benedikt hefur ekkert breytt liðinu sínu frá 1. umferð en hefur greinilega valið nokkuð gott lið. Ragnar notaði hins vegar Free Hit í 5. umferð. Hægt er að hlusta á alla þætti Fantasýn á tal.is með því að smella hér.
Enski boltinn Fantasýn Arion banki Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Sjá meira