Segir nýju mennina hjá Liverpool ekkert hafa getað Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. október 2025 23:33 Florian Wirtz þykir ekki hafa staðið undir væntingum hjá Liverpool. epa/ADAM VAUGHAN Rætt var um stöðu Liverpool í BigBen í gær. Mikael Nikulásson var gestur þáttarins ásamt Teiti Örlygssyni. Honum hefur ekki fundist mikið til Liverpool koma í upphafi tímabilsins og segir að leikmannakaup félagsins hafi ekki heppnast eins vel og stuðningsmenn þess vonuðust eftir.
Liverpool vann fyrstu sjö leiki sína á tímabilinu í öllum keppnum, marga á elleftu stundu, en hefur nú tapað tveimur leikjum í röð og á erfitt verkefni fyrir höndum gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Í BigBen varpaði Guðmundur Benediktsson fram spurningu hvort toppbaráttan í ensku úrvalsdeildinni yrði jafnari en flestir héldu. „Miðað við hvernig þetta hefur byrjað hjá Liverpool er það klárt. Þeir eru búnir að vera mjög slakir í vetur. Það er bara þannig. Þeir hafa bjargað sér. Þeir eru með fimm sigra [í ensku úrvalsdeildinni] og hafa kannski átt einn skilið,“ sagði Mikael. „Þetta var allt á 96. mínútu eða eitthvað. Það eru algjörir lykilmenn hjá þeim sem hafa ekkert getað.“ Klippa: BigBen - umræða um Liverpool Liverpool fór mikinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar en Mikael segir að kaupin hafi ekki lukkast eins vel og vonir stóðu til. „Kaupin hjá þeim og þessir nýju menn, fyrir utan [Hugo] Ekitike, sem er búinn að vera fínn, þeir hafa ekkert getað. Samkvæmt hörðustu stuðningsmönnum Liverpool átti þetta að vera besti leikmannagluggi sögunnar,“ sagði Mikael. Hjálmar Örn Jóhannsson sagði að það hefði verið skiljanlegt að vera á þeirri skoðun. Mikael keypti það ekki. „Við erum með vinstri bakvörð úr Bournemouth [Milos Kerkez], hægri bakvörð [Jeremie Frimpong] sem er varamaður í hollenska landsliðinu. En þegar Liverpool-gæjarnir byrja að tala fellur þú fyrir þessu. [Alexander] Isak mætti í engu standi og nennti ekki að æfa í sumar. Auðvitað eru þeir með frábært lið en mér finnst Arsenal vera með sterkari hóp en Liverpool.“ Innslagið úr BigBen má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira