Guéhi hafnaði samningstilboði frá Palace og fer næsta sumar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2025 11:30 Marc Guéhi hefur verið lykilmaður hjá Crystal Palace undanfarin ár. getty/Lewis Storey Marc Guéhi, fyrirliði Crystal Palace, ætlar ekki að framlengja samning sinn við félagið.
Oliver Glasner, knattspyrnustjóri Palace, greindi frá því að Guéhi ætli sér að yfirgefa Palace þegar samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið. „Ég held að Marc hafi þegar tjáð okkur að hann muni ekki skrifa undir nýjan samning svo hann fer á næsta ári. Félagið vildi halda honum og buðu honum nýjan samning en hann sagði: Nei, ég vil gera eitthvað annað,“ sagði Glasner. Flest benti til þess að Guéhi myndi ganga í raðir Englandsmeistara Liverpool í haust en félagaskiptin féllu upp fyrir á síðustu stundu. Að öllu óbreyttu fer Guéhi frá Palace á frjálsri sölu næsta sumar, ekki nema félagið selji hann í janúarglugganum. Guéhi hefur verið lykilmaður hjá Palace síðan hann kom til félagsins frá Chelsea fyrir fjórum árum. Hann varð bikarmeistari með Palace á síðasta tímabili. Hinn 25 ára Guéhi er fastamaður í enska landsliðinu og hefur leikið 26 leiki fyrir það og skorað eitt mark. Eftir að hafa verið taplaust í nítján leikjum í röð laut Palace í lægra haldi fyrir Everton, 2-1, í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar fyrir landsleikjahléið. Palace er með tólf stig í 6. sæti deildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Bournemouth í dag. Leikur Crystal Palace og Bournemouth hefst klukkan 14:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport 3.
Enski boltinn Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Af hverju spila ekki fleiri konur Fantasy? Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Mjög hættulegur vítahringur að mati Arteta Henry ekki hrifinn af hegðun Arsenal-manna í leikslok Sádi-arabísk félög sögð vilja kaupa Mo Salah „Ekki gleyma mér“ Sjá meira