Stormur eða hvassviðri suðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2025 07:26 Spáð er éljum eða skafrenningi á Norður- og Austurlandi, en annars yfirleitt léttskýjað. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan og norðaustan 8 til 15 metrum á sekúndu, en 15 til 23 metrum, hvassviðri eða stormi, suðaustantil í dag. Gera má ráð fyrir hviðum allt að 40 metrum á sekúndu við fjöll, hvassast austan Öræfa.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu eitt til sex stig að deginum, en víða vægt frost í nótt. Spáð er éljum eða skafrenningi á Norður- og Austurlandi, en annars yfirleitt léttskýjað. Gular viðvaranir vegna hríðar eru í gild á Austurlandi og Austfjörðum og vegna vinds á Suðausturlandi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Lægðin fjarlægist með kvöldinu og fer þá að draga úr vindi og úrkomu. „Á morgun, fimmtudag blæs áfram norðanátt með stöku éljum austanlands, en annars mun hægari vindur og bjart með köflum. Annað kvöld nálgast minniháttar úrkomusvæði úr vestri og gengur á land á Vestfjörðum. Hiti 1 til 6 stig að deginum, en víða vægt frost að næturlagi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Spákort fyrir klukkan 14.Veður Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast austast. Dálítil él á Norður- og Austurlanid, en annars víða léttskýjað. Vestlægari og dálítil slydda eða rigning á Vestfjörðum um kvöldið. Hiti 0 til 6 stig. Á föstudag: Norðvestlæg eða beytileg átt, 3-10 m/s dálítil slydda eða rigning vestantil og hiti 0 til 4 stig, en annars úrkomulítið og frost 0 til 5 stig. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Hægviðri og þykknar upp, en gengur í austan 8-15 m/s með snjókomu sunnan- og vestantil um kvöldið. Frost víða 0 til 5 stig. Á sunnudag og mánudag: Fremur hæg breytileg átt og dálítil slydda eða él á víð og dreif með hita nærri frostmarki. 'Á þriðjudag: Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða slyddu og kólnandi veðri.
Veður Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Fleiri fréttir Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Sjá meira