Bayern og Real Madrid í hóp liðanna með fullt hús Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2025 20:57 Jude Bellingham fagnar marki sínu í kvöld fyrir Real Madrid á móti Juventus. EPA/JUANJO MARTIN Bayern München og Real Madrid unnu í kvöld bæði sinn þriðja leik í röð í Meistaradeildinni og eru í hópi fjögurra liða sem eru með fullt hús eftir þrjár umferðir.
Bayern München og Real Madrid unnu í kvöld bæði sinn þriðja leik í röð í Meistaradeildinni og eru í hópi fjögurra liða sem eru með fullt hús eftir þrjár umferðir. Hin liðin með fullkomna byrjun eru Internazionale, Paris Saint Germain og Arsenal. Bayern München vann 4-0 heimasigur á Club Brugge eftir að hafa skorað þrjú mörk á fyrstu 34 mínútunum. Táningurinn Lennart Karl skoraði fyrsta markið á 5. mínútu og Harry Kane bætti við öðru marki á 14. mínútu. Luis Diaz skoraði síðan þriðja markið með þrumuskoti á 34. mínútu. Fjórða markið kom ekki fyrr en ellefu mínútum fyrir leikslok og það skoraði varamaðurinn Nicolas Jackson. Það var lokamark leiksins. Real Madrid vann 1-0 heimasigur á Juventus og hefur því líka unnið þrjá fyrstu leiki sína. Jude Bellingham kom Real í 1-0 á 57. mínútu eftir undirbúning frá Brasilíumanninum Vinicius Junior. Fylgdi á eftir stangarskoti Brassans. Það reyndist eina mark leiksins. Tottenham gerði markalaust jafntefli á útivelli á móti Mónakó og það var líka markalaust hjá Atalanta og Slavia Prag. Alisson Santos skoraði sigurmark Sporting í 2-1 sigri á Marseille en franska liðið komst í 1-0 með marki Igor Paixao á 14. mínútu. Emerson fékk rauða spjaldið í uppbótatíma fyrri hálfleiks og Marseille því manni færri eftir það. Geny Catamo janaði metin á 69. mínútu og sigurmarkið kom síðan fjórum mínútum fyrir leikslok.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Franski boltinn Fótbolti Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Fleiri fréttir Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Crystal Palace - Manchester City | Heimsækja bikarmeistarana Nottingham Forest - Tottenham | Tengja gestirnir saman sigra? Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Sjá meira