Ótrúlegur Kane sá við Messi og Ronaldo Valur Páll Eiríksson skrifar 23. október 2025 12:30 Kane fer mikinn þessi dægrin. Stefan Matzke - sampics/Getty Images Enski framherjinn Harry Kane fer mikinn í upphafi leiktíðar með Bayern Munchen. Hann skoraði eitt marka liðsins í 4-0 sigri á Club Brugge í Meistaradeild Evrópu í gær og hefur því skorað 20 mörk á leiktíðinni - á mettíma.
Kane skoraði klassískt framherjamark eftir stundarfjórðungsleik í öruggum sigri Bæjara í Munchen í gær. Um var að ræða tólfta leik hans á leiktíðinni fyrir félag og landslið og í þessum tólf leikjum hefur hann skorað 20 mörk. Enginn hefur komist yfir 20 marka múrinn í svo fáum leikjum og bætir hann met Cristiano Ronaldo frá 2014. Ronaldo skoraði þá 20 mörk í 13 leikjum fyrir Real Madrid og Portúgal. Lionel Messi hefur þrisvar komist í 20 mörkin í fyrstu 17 leikjum tímabils. Kane er þá nærri því að bæta met Wayne Rooney yfir flest mörk Englendings fyrir eitt og sama félagið í Meistaradeildinni. Rooney er eini Englendingurinn sem hefur afrekað það að skora 25 mörk fyrir sama lið, en það gerði hann með Manchester United. Þrátt fyrir skamman tíma í Bæjaralandi hefur Kane skorað 23 mörk fyrir félagið í Meistaradeild og virðist aðeins tímaspursmál hvenær hann bætir met Rooney. Áður skoraði Kane 21 mark fyrir Tottenham í Meistaradeildinni. Kane skoraði 400. mark sitt á ferlinum gegn Borussia Dortmund síðustu helgi og hefur þegar skorað 100 mörk fyrir Bayern í öllum keppnum, fljótar en nokkur annar. Alls hefur Kane skorað 105 mörk í 108 leikjum fyrir Bayern. Bayern hefur unnið alla þrjá leiki sína í Meistaradeildinni hingað til, með markatöluna 12-2. Af mörkunum tólf hefur Kane skorað fimm.
Þýski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Fleiri fréttir Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Vinicius hetjan eftir rautt spjald og líflegan grannaslag Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Sjá meira