Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Sindri Sverrisson skrifar 26. október 2025 20:02 Það vantaði ekki fjörið í Garðabæ í dag en að lokum var það Stjarnan sem fagnaði, þrátt fyrir eins marks tap. vísir/Ernir Tímabilinu í Bestu deild karla í fótbolta lauk með frábærum leik á milli Stjörnunnar og Breiðabliks, um Evrópusæti. Mörkin í leiknum voru glæsileg en þó sérstaklega mark Antons Loga Lúðvíkssonar.
Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum en honum lauk með 3-2 sigri Breiðabliks. Blikar þurftu hins vegar tveggja marka sigur til að komast upp fyrir Stjörnuna og ná Evrópusæti svo það voru Garðbæingar sem höfðu meiri ástæðu til að fagna í leikslok. Klippa: Stjarnan - Breiðablik 2-3 Benedikt Warén kom Stjörnunni yfir með góðu marki en á 19. mínútu jafnaði Anton Logi þegar hann tók boltann á brjóstkassann við vítateiginn og bombaði honum í boga í hægra hornið. Vægast sagt stórkostlegt mark. Örvar Eggertsson náði hins vegar að koma Stjörnunni aftur yfir fyrir lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleiknum skoraði Höskuldur Gunnlaugsson tvö afar lagleg mörk og voru Blikar því komnir yfir þegar enn var korter eftir af leiknum en fleiri mörk voru ekki skoruð. Leiktíðinni í Bestu deild karla er því lokið og þó að stjarnan hafi ekki unnið einn einasta leik eftir skiptingu deildarinnar náði liðið að enda í 3. sæti með einu marki betri markatölu en Breiðablik. Bæði lið enduðu með 42 stig eftir 27 umferðir, þremur stigum á eftir Val og fimmtán á eftir meisturum Víkings.
Besta deild karla Stjarnan Breiðablik Tengdar fréttir Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap Stjarnan tryggði sér í dag þriðja og síðasta Evrópusætið sem í boði var í Bestu-deild karla, þrátt fyrir 2-3 tap gegn Breiðablik í síðasta leik tímabilsins. 26. október 2025 16:22 Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ „Það er erfitt að eiga við okkur“ Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap Stjarnan tryggði sér í dag þriðja og síðasta Evrópusætið sem í boði var í Bestu-deild karla, þrátt fyrir 2-3 tap gegn Breiðablik í síðasta leik tímabilsins. 26. október 2025 16:22