Áföll og samskiptamynstur erfast milli kynslóða Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 14. nóvember 2025 10:26 Tengslastíllinn okkar hefur bein áhrif á sambönd á fullorðinsárum og getur erfst á milli kynslóða, bæði góð og slæm. Getty Hefurð þú einhvern tímann velt því fyrir þér hvers vegna þú bregst við á ákveðinn hátt í samskiptum? Af hverju verða sumir reiðir og fara í vörn, á meðan aðrir hörfa við ágreining? Með því að skilja eigin sögu og samskiptamynstur getum við séð hvaðan viðbrögðin koma og hvort þau séu hjálpleg í dag.
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Auðnast, „Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar“, fjalla Ragnhildur Bjarkadóttir og Hrefna Hugosdóttir um hvernig reynsla úr æsku og jafnvel frá fyrri kynslóðum hefur áhrif á tengslastíl, samskipti og heilsu. Ragnhildur og Hrefna er eigendur Auðnast.Auðnast Kynslóðaarfur og taugakerfið Rannsóknir sýna að áföll geta haft áhrif milli kynslóða. Börn einstaklinga sem hafa upplifað alvarleg áföll eða ótryggar aðstæður geta þróað með sér næmara taugakerfi sem gerir þau viðkvæmari fyrir streitu, kvíða, svefntruflunum og ofurviðbrögðum. „Viðbrögðin virðast stundum koma úr engu, en þegar við skoðum þau sjáum við mynstur sem hefur mótast innan fjölskyldunnar yfir margar kynslóðir,“ segir Ragnhildur og bendir á að taugakerfið sé „forritað“ á mismunandi hátt – bæði hjálplegan og hamlandi. Þau hafa jafnvel áhrif á okkar daglega líf, persónulegt og í starfi. Börn einstaklinga sem hafa upplifað alvarleg áföll eða ótryggar aðstæður geta þróað með sér næmara taugakerfi sem gerir þau viðkvæmari fyrir streitu, kvíða, svefntruflunum og ofurviðbrögðum.Getty Í þættinum er einnig rætt hvernig reynsla frá uppvexti hefur áhrif á samskipti í parsamböndum, vináttu og öðrum nánum tengslum á fullorðinsaldri. „Tengslastíllinn hefur bein áhrif á samböndin okkar. Við getum verið kvíðin, forðunarmiðuð, óörugg eða óskipulögð í tengslum, allt eftir því sem mótaðist í félagsmótun frá bernsku og fram á unglingsár. Margt verður að vanabundnum brautum og lífeðlislegum viðbrögðum sem getur reynst erfitt að breyta,“ segir Ragnhildur. Fjölskyldunni er líkt við lifandi kerfi þar sem tilfinningar, hegðun og viðbrögð móta mynstur sem teygja sig yfir kynslóðir. Þær útskýra að mikilvægt sé að skoða hvernig saga og reynsla móta heilsu og tengslahæfni, hvernig sagan lifir áfram í líkamanum. „Það er svo mikilvægt að átta sig á hvers vegna við bregðumst við á mismunandi hátt: sumir fara í þögn, aðrir í kvíða eða aukna nánd. Viðbrögðin eru ólík, en ekki tilviljanakennd,“ segir Hrefna. Meðvitund og keðjubrjótur Ragnhildur segir að þegar við byrjum að skilja eigin sögu og samskiptamynstur getum við séð hvaðan viðbrögðin koma og hvort þau séu hjálpleg í dag. Með því að skilja eigin sögu og mynstur getum við rofið keðjuna og skapað heilbrigðara sambandsmynstur. Þrjú lykilskref ef þú finnur að samskiptin hafa áhrif á þig: Að þekkja kynslóðaarfinn þinn og velta því fyrir þér hvernig hann hefur áhrif á líf þitt er mikilvægt fyrsta skref. Gott er að skoða þessi mynstur í öruggu umhverfi – ekki strax eftir aðstæður sem hafa triggerað þig, heldur þegar þú hefur ró til að íhuga þau af yfirvegun. Næsta skref er að meta hvort kynslóðaarfurinn sé gagnlegur eða ógagnlegur, allt eftir samhengi. Sum mynstur geta reynst hjálpleg í starfi en hamlandi í daglegu lífi, eða öfugt. Meðvitund um þetta gerir okkur kleift að taka skýra ákvörðun um hvað við viljum halda og hvað við viljum breyta. Gott er að kortleggja þessi mynstur, skrifa þau niður og sjá þau svart á hvítu. Þriðja skrefið er að ráðast í raunverulegar breytingar. Það er áhugavert að þegar við skoðum kynslóðaarfinn sjáum við oft að einhver í fjölskyldunni verður sá sem brýtur mynstrin – keðjubrjóturinn. Sá einstaklingur tekur meðvitaða ákvörðun um að skapa nýja leið fram á við og ber þannig ábyrgð á breytingu sem getur haft jákvæð áhrif á komandi kynslóðir. Þáttinn má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan:
Heilsa Fjölskyldumál Mest lesið Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó Menning Af og frá að fimmti þáttur hafi verið klipptur extra mikið Lífið Ólöf Skafta og Kristín dannaðar í miðborginni Lífið Æstur aðdáandi óð í Grande Bíó og sjónvarp Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Menning Áföll og samskiptamynstur erfast milli kynslóða Lífið „Mjög pirruð út í hvort annað eftir frumsýninguna“ Lífið Lögmálið um lítil typpi Lífið Fyrsti íslenskumælandi bóndabærinn slær í gegn Lífið samstarf Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Tónlist Fleiri fréttir Ólöf Skafta og Kristín dannaðar í miðborginni Af og frá að fimmti þáttur hafi verið klipptur extra mikið Áföll og samskiptamynstur erfast milli kynslóða Tíu töff pelsar fyrir veturinn „Mjög pirruð út í hvort annað eftir frumsýninguna“ Ölgerðin lítur Orkutal „öfgahægrisins“ alvarlegum augum Spennandi fiski-takkó fyrir alla fjölskylduna Kastaði sér niður fimmtán stiga: „Marinn, þjáður og aumkunarverður“ „Get ekki hætt að hlusta og gráta“ Lögmálið um lítil typpi Dansandi bræður slá í gegn á stóra sviðinu Safaríkur kjúklingaréttur sem slær alltaf í gegn Smart og stílíseruð í Sigvaldablokk Stórstjörnur í snjóbrettasenunni fögnuðu Fann engin önnur ráð en „að ganga í söfnuð Votta Jehóva“ Einbýlishús í Garðabænum eftir miklar framkvæmdir Sérstök og sjaldgæf íslensk nöfn: „Vitanlega var mér strítt“ „Konan hans hlýtur að taka á honum þegar hún heyrir þetta“ Slær á sögusagnirnar með lúmskum skilaboðum Eins og sebrahestur umkringdur ljónum Sjáðu nýtt og stærðarinnar veitingasvæði í Smáralind Löggunni ekki boðið en mætti tvisvar til Jenner Binni ætlaði að sjóða kartöflur í hraðsuðukatli Ein besta knattspyrnukona landsins frátekin Leikkonan Sally Kirkland er látin Jana Steingríms og Lilja Ketils héldu bleikt partý Úrslitin réðust í lokaspurningu um mislukkaðan uppfinningamann Gulli áttaði sig skyndilega á því að hann væri í miðjum Heimsóknarþætti Fellaskóli vann Skrekk Innlit: Hlýlegt heimili í sögulegri viðbyggingu í Vesturbænum Sjá meira