Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Stefán Árni Pálsson skrifar 19. nóvember 2025 08:31 Gísli Eyjólfsson leikur með Skagamönnum á næsta tímabili. vísir/lýður Skagamenn klófestu knattspyrnumanninn Gísla Eyjólfsson undir lok síðasta mánaðar. Hann kemur til liðsins eftir atvinnumennsku í Svíþjóð síðustu tvö tímabil.
Gísli gerir þriggja ára samning við Skagamenn en hann kemur til liðsins frá Halmstad. Gísli er 31 en hafði fyrir Svíþjóðardvölina leikið nánast allan sinn feril með uppeldisfélaginu Breiðabliki. Hann var lykilmaður í liði Breiðabliks sem varð Íslandsmeistari árið 2022. Kærasta Gísla er af Akranesi og munu þau koma sér fyrir á Skaganum. Um er að ræða mikinn liðsstyrk fyrir Skagaliðið sem rétt bjargaði sér frá falli með ótrúlegum lokaspretti á síðasta tímabili. „Það var mikill áhugi frá þeim og þeir ætla að gera þetta almennilega næstu árin og mér fannst stefnan hjá félaginu passa bara mjög vel fyrir mig,“ segir Gísli í Sportpakkanum á Sýn í gær. Með sömu sýn og þjálfarinn Lárus Orri Sigurðsson tók við ÍA á miðju tímabili og náði eins og áður segir að bjarga liðinu frá falli. „Ég átti virkilega góð samtöl við hann og fékk að heyra hans sýn á þetta og mér fannst allt sem hann sagði smellpassa við það hvað ég var að hugsa fyrir sjálfan mig,“ segir Gísli en fjölskyldan er nú þegar flutt upp á Skaga. „Konan er af Skaganum og bróðir hennar er Steinar Þorsteinsson [leikmaður ÍA] og hann er búinn að vera að sýna mér um þarna og það er bara mikil og stór fjölskylda sem tók á móti manni þarna. Við fluttum upp á Skaga svona tveimur vikum áður en ég samdi við Halmstad. Planið var alltaf að flytja upp á Skaga og núna förum við loksins inn í íbúðina sem við keyptum fyrir tveimur árum,“ segir Gísli sem talar einstaklega vel um tímann sinn í Svíþjóð en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Besta deild karla Íslenski boltinn ÍA Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Sjá meira