Hækka árgjöld kreditkorta í fyrsta sinn í sjö ár Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. nóvember 2025 15:08 Bankinn hefur ekki hækkað gjöldin síðan árið 2018. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn Arion banka hafa hækkað árgjöld á kreditkort sín í fyrsta sinn í sjö ár, frá árinu 2018. Breytingarnar taka gildi 1. febrúar. Hlutfallsleg hækkun á notkun aukakorta eru mestar og nema að jafnaði um fjörutíu prósentum. Bankinn tilkynnti korthöfum um hækkanirnar í tilkynningu í dag. Þar kemur fram að árgjöld kortanna hafi verið óbreytt frá árinu 2018. Nú hækki bankinn gjaldið í fyrsta sinn í sjö ár, á þeim árum hafi vísitala neysluverðs hækkað um 45 prósent. Korthafar hafi notið sérkjara og muni að öðru óbreyttu njóta þeirra áfram. Þannig birtir bankinn verð á einstökum kortategundum í töflu. Sem dæmi mun almennt kort nú kosta 3990 krónur á ári en kostaði áður 3400 krónur. Gullkortið fer úr 10.300 krónum í 12.360 krónur og Platinumkort úr 17.900 krónum fyrir árið og í 21.480 krónur. Er um að ræða um tuttugu prósenta hlutfallslega hækkun. Mesta hlutfallslega hækkunin nær til Premía kortsins sem fer úr 46.900 krónum í 60.970 þar sem hlutfallsleg hækkun nemur þrjátíu prósentum. Hækkanirnar eru hlutfallslega mestar þegar kemur að notkun aukakorta og nema að jafnaði rúmum fjörutíu prósentum. Þannig mun kostnaður aukakorts vegna almenns korts nema 40,6 prósentum en minnsta hækkunin nær til Premium World aukakortsins, eða 25 prósent. Bæði Gullkortin og Platinumkortin hækka hlutfallslega um 44
Bankinn tilkynnti korthöfum um hækkanirnar í tilkynningu í dag. Þar kemur fram að árgjöld kortanna hafi verið óbreytt frá árinu 2018. Nú hækki bankinn gjaldið í fyrsta sinn í sjö ár, á þeim árum hafi vísitala neysluverðs hækkað um 45 prósent. Korthafar hafi notið sérkjara og muni að öðru óbreyttu njóta þeirra áfram. Þannig birtir bankinn verð á einstökum kortategundum í töflu. Sem dæmi mun almennt kort nú kosta 3990 krónur á ári en kostaði áður 3400 krónur. Gullkortið fer úr 10.300 krónum í 12.360 krónur og Platinumkort úr 17.900 krónum fyrir árið og í 21.480 krónur. Er um að ræða um tuttugu prósenta hlutfallslega hækkun. Mesta hlutfallslega hækkunin nær til Premía kortsins sem fer úr 46.900 krónum í 60.970 þar sem hlutfallsleg hækkun nemur þrjátíu prósentum. Hækkanirnar eru hlutfallslega mestar þegar kemur að notkun aukakorta og nema að jafnaði rúmum fjörutíu prósentum. Þannig mun kostnaður aukakorts vegna almenns korts nema 40,6 prósentum en minnsta hækkunin nær til Premium World aukakortsins, eða 25 prósent. Bæði Gullkortin og Platinumkortin hækka hlutfallslega um 44 prósent. Aðalkort hlutfallsleg hækkun: Almennt kort = 17,4 prósent Bláa kortið = 12,0 prósent Gullkort = 20,0 prósent Gullkort vildar = 20,0 prósent Platinumkort = 20 prósent Platinum vildar = 20,1 prósent Premium World = 25 prósent Premía = 30,0 prósent Aukakort - hlutfallsleg hækkun: Almennt kort = 40,6 prósent Bláa kortið = 34,3 prósent Gullkort = 44,0 prósent Gullkort vildar = 44,0 prósent Platinumkort = 44,0 prósent Platinum vildar = 44,0 prósent Premium World = 25,0 prósent
Aðalkort hlutfallsleg hækkun: Almennt kort = 17,4 prósent Bláa kortið = 12,0 prósent Gullkort = 20,0 prósent Gullkort vildar = 20,0 prósent Platinumkort = 20 prósent Platinum vildar = 20,1 prósent Premium World = 25 prósent Premía = 30,0 prósent Aukakort - hlutfallsleg hækkun: Almennt kort = 40,6 prósent Bláa kortið = 34,3 prósent Gullkort = 44,0 prósent Gullkort vildar = 44,0 prósent Platinumkort = 44,0 prósent Platinum vildar = 44,0 prósent Premium World = 25,0 prósent
Arion banki Greiðslumiðlun Neytendur Fjármál heimilisins Mest lesið Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Atvinnulíf Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Viðskipti innlent Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum Samstarf Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira