Mo Salah hefur ekki verið bestur í Afríku í sjö ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2025 17:17 Achraf Hakimi eltir Mohamed Salah í leik Liverpool og Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni þar sem PSG sló út Liverpool á dramatískan hátt. Getty/Liverpool FC Varnarmaðurinn Achraf Hakimi hjá Paris Saint-Germain var valinn knattspyrnumaður ársins í Afríku árið 2025 en hann fékk verðlaunin afhent við athöfn í Rabat í Marokkó.
Marokkóski landsliðsmaðurinn fékk flest atkvæði en Mohamed Salah, stórstjarna Liverpool og Egyptalands, og Victor Osimhen, framherji Nígeríu og Galatasaray, komu næstir. Salah átti magnað tímabil með Englandsmeisturum Liverpool þar sem hann var bæði markahæstur og stoðsendingahæstur í bestu deild heims, ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur ekki verið kosinn bestur í Afríku í sjö ár eða síðan hann var valinn bestur tvö ár í röð, 2017 og 2018. A recognition that crowns years of hard work, success, and unforgettable moments.My gratitude goes to my family, my teammates, and everyone who works with me every day, on and off the field. Your trust, dedication, and support make me stronger and allow me to grow.Thank you… pic.twitter.com/ZssdnZ2T55— Achraf Hakimi (@AchrafHakimi) November 19, 2025 „Ég er mjög stoltur af því að vinna þessi virtu verðlaun,“ sagði Hakimi. „Þessi bikar er ekki bara fyrir mig, heldur fyrir allar sterku konurnar og karlana sem dreymir um að verða knattspyrnumenn í Afríku. Og fyrir þá sem trúðu alltaf á mig frá því ég var barn, að ég myndi einn daginn verða atvinnumaður í fótbolta. Ég vil þakka þeim öllum,“ sagði Hakimi. Hakimi átti vissulega stórkostlegt tímabil og vann fimm titla með PSG, þar á meðal fyrsta Meistaradeildartitil félagsins. He won the Champions League. He won the UEFA Super Cup. He won Ligue 1. He won the Coupe de France. He won the Trophée des Champions. And he helped Morocco qualify for the World Cup. Achraf Hakimi is the 2025 African Player of the Year 🇲🇦 pic.twitter.com/Nu5n1bVcng— B/R Football (@brfootball) November 19, 2025 Bakvörður PSG lék lykilhlutverk í úrslitaleiknum þegar hann skoraði fyrsta markið í ógleymanlegum 5-0 sigri á Inter Mílanó í maí. Gianni Infantino, forseti FIFA, og Patrice Motsepe, forseti CAF, afhentu Hakimi verðlaunin, en það er heiður sem varnarmaður hefur ekki hlotið síðan miðvörðurinn Bwanga Tshimen frá Saír (nú Lýðstjórnarlýðveldið Kongó) vann þau árið 1973. Miðjumaðurinn Ghizlane Chebbak varð fyrsta marokkóska konan til að vinna titilinn knattspyrnukona Afríku ársins. Hún hlaut aðalverðlaunin og var þar á undan landa sínum Sanaa Mssoudy og Rasheedat Ajibade frá Nígeríu. Bubista var valinn þjálfari ársins eftir að hafa stýrt eyríkinu Grænhöfðaeyjum til óvænts sætis á HM 2026, en þetta er í fyrsta sinn sem þjóðin tryggir sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu.
Franski boltinn Afríkukeppnin í fótbolta Enska augnablikið Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Sjá meira