Sjáðu fíflaganginn hjá Paquetá: Fékk tvö gul með 54 sekúndna millibili Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2025 16:35 Darren England rekur Lucas Paquetá út af í leik West Ham United og Liverpool. getty/Liverpool FC Lucas Paquetá var rekinn af velli í leik West Ham United og Liverpool eftir að hafa fengið tvö gul spjöld með 54 sekúndna millibili fyrir mótmæli.
Paquetá sneri aftur í lið West Ham eftir leikbann í dag. Hann var í byrjunarliði Hamranna en kláraði þó ekki leikinn vegna fáránlegrar hegðunar. Á 83. mínútu gaf Darren England, dómari leiksins, Paquetá gult spjald fyrir að mótmæla aukaspyrnu sem var dæmd á Niclas Füllkrug fyrir brot á Dominik Szoboszlai. Paquetá linnti þó ekki látum, hélt áfram að tuða og tæpri mínútu eftir að hafa fengið gula spjaldið lyfti England því aftur og rak Brassann af velli. Klippa: Lucas Paquetá fær tvö gul spjöld með 54 sekúndna millibili Hegðun Paquetás vekur sérstaka athygli í ljósi þess að hann hefur sætt rannsókn fyrir að næla sér viljandi í spjöld í leikjum West Ham til að hafa áhrif á veðmálamarkaði. Paquetá var hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl en umræðan um þau mun eflaust blossa aftur upp eftir þetta síðasta uppátæki hans. West Ham tapaði leiknum, 0-2, og er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Gulu spjöldin sem Paquetá fékk má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Sjá meira