Blæs hressilega af austri Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2025 07:05 Hiti á landinu verður á bilinu tvö til sjö stig frost að fimm stigum inn til landsins norðan heiða. Vísir/Anton Brink Suður af Reykjanesi er nú víðáttumikil lægð og frá henni liggja skil að suðurströndinni. Það blæs því af austri eða norðaustri, yfirleitt er vindur á bilinu tíu til átján metrar á sekúndu, en að 23 metrum á sekúndu syðst og undir Vatnajökli.
Á vef Veðurstofunnar segir að á þeim svæðum séu gular viðvaranir í gildi vegna storms og rétt að vegfarendur hugi að aðstæðum, einkum þeir sem eru á farartækjum sem taki á sig mikinn vind. „Suðaustan- og austantil verður ringing eða slydda en búast má við stöku skúr eða él í öðrum landshlutum. Hiti 2 til 7 stig en frost að 5 stigum inn til landsins norðan heiða. 'Á morgun verður lægðin farin að nálgast vesturströnd Skotlands og þá má búast við norðaustan kalda eða stinningskalda og sums staðar allhvössum vindi. Áfram rigning eða slydda norðan- og austanlands og dálítil snjókoma á Vestfjörðum. Á Suður- og Vesturlandi verður hins vegar að mestu bjart og þurrt. Hiti breytist lítið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 11 í dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 m/s, hvassast suðaustanlands. Snjókoma eða slydda á austanverðu landinu og sums staðar rigning við ströndina, dálítil él norðvestanlands, en annars yfirleitt þurrt. Frost 0 til 6 stig, en sums staðar frostlaust við sjávarsíðuna. Á miðvikudag og fimmtudag: Norðaustan 5-13 m/s og él, en yfirleitt léttskýjað sunnan- og vestanlands. Frost víða 0 til 5 stig. Á föstudag: Norðlæg átt og lítilsháttar él, en bjart með köflum sunnan heiða. Bætir í ofankomu um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Norðlæg átt og dálítil snjókoma, en léttskýjað sunnantil. Kólnar heldur. Á sunnudag: Útlit fyrir norðaustanátt með él, en skýjað með köflum og þurrtu á sunnanverðu landinu.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira