Bein útsending: Litlu jól Blökastsins Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. desember 2025 15:02 Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steinþór Hróar Steinþórsson koma sér í jólagírinn á sunnudaginn með jólabingói. Litlu jól Blökastsins fara fram í beinni útsendingu á Vísi og sjónvarpi Vísis klukkan 19:30 í dag. Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steinþór Hróar Steinþórsson munu þar opna yfir fimmtíu jólagjafir og draga út áskrifanda fyrir hverja gjöf.
Litlu Jólin eru orðin að árlegum viðburði hjá FM95Blö þar sem þremenningarnir hafa það huggulegt með heitt súkkulaði og opna gjafir fyrir heppna áskrifendur. Til þess að eiga kost á að vinna er hægt að gerast áskrifandi að Blökastinu hér. Allir áskrifendur eru sjálfkrafa í pottinum, sama hvort þeir koma inn í þáttinn fyrir hann eða í miðri útsendingu. Horfa má á útsendinguna í beinni í spilaranum hér fyrir neðan og hefst hún klukkan 19:30. Ýmislegt getur leynst í pökkunum „Fólk þarf bara að vera áskrifandi af Blökastinu, setjast í sófann með heitt kakó og sjá hvort þau verði dregin út!“ segir Steindi í samtali við Vísi. Í gegnum tíðina hafa alls konar gjafir komið upp úr pökkunum, verið allt frá ullarsokkum yfir í flugferðir í pottinum. Svo yfirleitt kemur Steindi með eitthvað skemmtilegt úr bílskúrnum. Auk litlu jólanna heldur Blökastið úti jóladagatali daglega fram að jólum. Á nýársdag 2026 verður síðan árlegt fjölskyldunýársbingó Blökastsins.
FM95BLÖ Jól Mest lesið Betri en hefðbundnar sörur Jól Ilmandi jólaglögg að hætti Jönu Jól Kertasníkir sá eini sem gefur Rakel enn í skóinn Jól Jólahús á Selfossi myndað í gríð og erg Jól Byggði Eiffelturninn úr piparkökum og ætlar sér meira Jól Jólastöðin komin í loftið Jól Gluggagægir kom til byggða í nótt Jól Jólagjafir íslenskra vinnustaða: Gjafabréf á gjafabréf ofan Jól