Sjáðu nýju stjörnuna hjá Arsenal og hvernig Man. City vann Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. desember 2025 08:23 Noni Madueke fagnar seinna marki sínu fyrir Arsenal í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Getty/Stuart MacFarlane Arsenal er áfram með fullt hús á toppi Meistaradeildarinnar eftir að sjöttu umferðinni lauk í gær. Nú má sjá mörk úr leikjum gærkvöldsins hér inni á Vísi.
Noni Madueke sló í gegn hjá Arsenal í gær með tveimur mörkum en þau gætu ekki verið ólíkari. Arsenal vann 3-0 útisigur á belgíska félaginu Club Brugge. Madueke skoraði fyrst með stórbrotnu skoti í slá og inn af löngu færi en seinna markið skoraði hann af mjög stuttu færi. Gabriel Martinelli innsiglaði svo sigurinn, fullt hús og markatöluna 17-1. Klippa: Mörkin úr leikjum Arsenal og Newcastle í Meistaradeildinni Erling Haaland tryggði Manchester City 2-1 útisigur á Real Madrid með marki úr vítaspyrnu. Rodrygo kom Real í 1-0 en Nico O'Reilly jafnaði í 1-1. Öll þrjú mörkin komu í fyrri hálfleiknum. Klippa: Mörkin úr leik Real Madrid og Manchester City Viktor Bjarki Daðason og félagar í FC Kaupmannahöfn unnu 3-2 útisigur á spænska liðinu Villarreal. Viktor var í byrjunarliðinu en skoraði ekki. Varamaður hans, Andreas Cornelius, skoraði sigurmarkið. Klippa: Mörkin úr leik Villarreal og FC Kaupmannahöfn Það voru tvö markajafntefli því Bayer Leverkusen og Newcastle gerðu 2-2 jafntefli og Dortmund og norska félagið Bodö/Glimt gerðu einnig 2-2 jafntefli. Anthony Gordon og Lewis Miley skoruðu mörk enska liðsins. Weston McKennie og Jonathan David skoruðu í 2-0 sigri Juventus á Pafos og þeir Richard Rios og Leandro Barreiro skoruðu mörk Benfica í 2-0 sigri á Napoli. Klippa: Mörkin úr leik Dortmund og Bodö/Glimt Klippa: Mörkin úr leik Juventus og Pafos Klippa: Mörkin úr leik Benfica og Napoli
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Körfubolti Fleiri fréttir Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira