Telur samstarf Hamilton og Ferrari nálgast þolmörk Aron Guðmundsson skrifar 17. desember 2025 13:32 Lewis Hamilton átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili hjá Formúlu 1 liði Ferrari Vísir/Getty Fyrrverandi liðsstjóri Formúlu 1 liðs Ferrari telur að samband sjöfalda heimsmeistarans Lewis Hamilton og Ferrari gæti verið að nálgast þolmörk.
Segja má að frumraun hins fertuga Hamiltons á nýafstöðnu tímabili hjá Ferrari hafi ekki staðist væntingar. Ítrekað lenti sjöfaldi heimsmeistarinn í vandræðum og fór svo að hann endaði tímabilið í 6.sæti í stigakeppni ökumanna á eftir liðsfélaga sínum Charles Leclerc. Á miðju tímabili greindi Hamilton frá því að hann hefði sent liðsfélögum sínum hjá Ferrari, sem koma að hönnun bílsins ítarleg skjöl, með hugmyndum sínum varðandi það hvernig hægt væri að ná meira úr honum. „Ég kom einnig á mörgum fundum. Kallaði eftir því að fá að setjast niður með stjórnendum liðsins,“ sagði Hamilton á sínum tíma og sagðist bæði hafa viðrað hugmyndir sínar varðandi bíl þessa árs sem og næstu ára. Óhætt er að segja að vinnubrögð Hamilton heilli ekki fyrrverandi liðsstjóra Ferrari liðsins, Maurizio Arrivabene. Maurizio Arrivabene og Sebastian Vettel störfuðu saman hjá Ferrari á sínum tíma.Vísir/Getty Arrivabene var liðsstjóri Formúlu 1 liðs Ferrari á árunum 2014 til 2019 og segir fjórfalda heimsmeistarann Sebastian Vettel, sem var ökumaður liðsins yfir fimm ára tímabil til ársins 2020, haft sama háttinn á og Hamilton. „Hann skrifaði, talaði og deildi öllu,“ sagði Arrivabene við Sky Sports Italy og bætti við að skjölin sem að Vettel hafi sent liðinu hefðu verið nær gagnslaus. „Ég vil ekki segja neitt slæmt um Vettel, en hann hefði bara átt að einbeita sér að sínu starfi. Þegar að ökumaður spilar sem verkfræðing er þetta í raun búið spil.“
Akstursíþróttir Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira