Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Valur Páll Eiríksson skrifar 18. desember 2025 22:41 Davíð Snorri var aðstoðarþjálfari Hareide í stjóratíð hans. vísir/Anton Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, sem starfaði sem slíkur undir stjórn Norðmannsins Åge Hareide, minnist norsku goðsagnarinnar sem lést í kvöld.
Davíð Snorri var aðstoðarþjálfari Hareide í stjóratíð hans með íslenska liðið sem varði frá vormánuðum 2023 þar til Hareide sagði upp í nóvember í fyrra. Hann minnist mikils leiðtoga og vinar. „Kæri vinur. Þetta er sorgardagur fyrir mig, leikmennina, starfsliðið, fótboltann og fyrst og fremst fjölskyldu þína,“ segir Davíð í kveðju á samfélagsmiðlinum Instagram. Hareide lést í dag, 72 ára að aldri, eftir nokkurra mánaða baráttu við krabbamein í heila. Davíð rifjar upp sérlega góða minningu þeirra félaga. „Það er aðeins eitt og hálft ár síðan að við stóðum saman á Wembley að fagna með strákunum okkar. Eftir á sagðir þú við mig með þínu stóra brosi: „Davíð, lofaðu mér einu, að vera ávallt þakklátur fyrir góðu augnablikin í lífinu og fótboltanum – vegna þess að oftast gerir þessi íþrótt þig geðveikan“,“ segir Davíð Snorri frá en einn stærsti sigurinn undir stjórn Norðmannsins var 1-0 sigur á Englandi á Wembley í aðdraganda EM 2024. „Þetta er erfitt en ég mun gera það sem ég lofaði þér stjóri. Ég verð þakklátur fyrir að hafa þekkt þig, unnið með þér, öll samtölin, ráðin, ástríðuna, leiðtogahæfnina og til míns síðasta dags fyrir vinskapinn,“ „Frá öllum þínum íslensku vinum, eru hugsanir okkar og samúðarkveðjur hjá fjölskyldu þinni á þessum erfiða tíma,“ segir Davíð Snorri og bætir við: „Sannur leiðtogi. Hvíl í friði, stjóri.“
Landslið karla í fótbolta KSÍ Íslenski boltinn Norski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Báðir þurfa bikar Enski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Brobbey braut hjörtu svarthvítra Tottenham - Nott. Forest | Bæði lið að berjast fyrir lífi sínu Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Sjá meira