Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Atli Ísleifsson skrifar 25. desember 2025 08:21 Frá Seyðisfirði. Myndin er úr safni. Getty Það blés hraustlega á landinu í gær og í nótt, sérstaklega um landið norðvestanvert. Sunnanáttinni fylgdu mikil hlýindi og í gærkvöldi var desemberhitametið slegið í hnjúkaþey á Seyðisfirði en þar komst hitinn í 19,8 stig.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar en fyrra met var 19,7 stig, sett á Kvískerjum 2019. „Nú er sunnanáttin farin að ganga niður, víða 8-15 m/s með morgninum og súld eða rigning með köflum, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri þó hitatölur nái líklega ekki sömu hæðum og í gærkvöldi. Í kvöld nálgast kuldaskil úr vestri, þá bætir heldur í vind og úrkoman verður samfelldari vestanlands. Þegar skilin ganga yfir í nótt kólnar nokkuð skarpt og það fer að snjóa til fjalla.Vestan og suðvestan 10-18 m/s á morgun og lítilsháttar él, hvassast norðanlands. Í fyrramálið verður skilaúrkoman þó enn viðloðandi austantil á landinu en þar léttir til þegar líður á morguninn. Hiti um eða yfir frostmarki. Síðdegis verður svo þurrt að mestu á landinu og það dregur smám saman úr vindi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Vaxandi suðvestanátt norðanlands, 10-18 m/s þar seinnipartinn, en annars mun hægari vindur. Skýjað vestantil, sums staðar dálítil væta og hiti 0 til 6 stig, en léttskýjað og svalara um landið austanvert. Á sunnudag: Suðvestan og vestan 5-13 m/s, skýjað að emstu og dálítil væta á stöku stað, en bjart með köflum austantil. Hiti víða 0 til 6 stig. Á mánudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en líkur á stöku skúrum eða éljum norðan- og vestantil. Heldur kólnandi veður. Á þriðjudag: Suðvestlæg átt og skýjað með köflum, en dálítil él á víð og dreif. Hiti nærri frostmark. Á miðvikudag (gamlársdagur): Útlit fyrir ákveðna vestan- og síðan norðvestanátt og víða dálitla úrkomu, en þurrviðri suðaustanlands. Fremur svalt í veðri.
Veður Múlaþing Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira