Síðasti naglinn í kistu Nuno? Valur Páll Eiríksson skrifar 6. janúar 2026 21:56 Nuno gæti verið á förum eftir tap kvöldsins. Izzy Poles - AMA/Getty Images Nottingham Forest vann 2-1 sigur á West Ham United í Lundúnum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Tapið gæti kostað Nuno Espirito Santo, þjálfara West Ham, starfið.
Margir töldu að starfið væri undir hjá Nuno Espirito Santo, þjálfara West Ham United, er fyrrum félag hans Nottingham Forest kom í heimsókn í dag. West Ham hafði spilað níu leiki í röð án sigurs og ekki unnið leik síðan í byrjun nóvember. Það byrjaði þó vel fyrir West Ham í kvöld. Fyrrum lærisveinn Nuno, brasilíski varnarmaðurinn Murillo, skoraði sjálfsmark eftir 13 mínútna leik og 1-0 stóð í hléi fyrir heimamenn. Á 51. mínútu virtist Crysencio Summerville vera að tvöfalda forskot West Ham en mark hans var dæmt af eftir endurskoðun myndbandsdómara. Aðeins fjórum mínútum síðar svaraði Forest með marki Nicolasar Dominguez. Staðan því 1-1 í stað 2-0. Allt stefndi í jafntefli en á 85 mínútu fór Alphonse Areola, markvörður West Ham, í heldur glæfralegt úthlaup eftir aukaspyrnu. Hann hugðist kýla boltann frá sem fór ekki betur en svo að hann gaf Morgan Gibbs-White einn á kjammann. Dómarinn var sendur í skjáinn og ekkert annað að gera en að dæma víti, Areola víðs fjarri boltanum og kýldi Gibbs-White hreinlega í framan. Gibbs-White steig sjálfur á punktinn og skoraði til að tryggja Forest 2-1 útisigur í Lundúnum. West Ham var því að leika tíunda deildarleikinn í röð án þess að fagna sigri og situr í 18. sæti deildarinnar með 15 stig. Forest er þar fyrir ofan, í 17. sæti, með 21 stig. Nuno tók við West Ham í september eftir að Graham Potter var sagt upp hjá liðinu. West Ham hefur aðeins unnið tvo leiki af 17 undir hans stjórn og gæti þriðji stjóri Hamranna á leiktíðinni tekið við áður en langt er um liðið.
Enski boltinn West Ham United Nottingham Forest Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fór grátandi af velli Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Sjá meira