Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. janúar 2026 08:32 Elías Már er nýjasti leikmaður Víkings í Bestu deild karla. vikingur.is Elías Már Ómarsson varð fljótt þreyttur á því að vera vakandi á nóttunni í kínversku fátækrahverfi og samdi við Víking í von um að vinna fyrsta meistaratitilinn á ferlinum.
Eftir rúman áratug í atvinnumennsku erlendis, með viðkomu í Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, lengst af í Hollandi og síðast í Kína, vildi Elías Már komast aftur heim. „Þetta er skemmtileg lífsreynsla, þannig séð, en ég var ekki spenntur að fara aftur þangað sem ég var. Ég var bara einn 24/7 þarna og mikill tímamismunur á Íslandi og Kína, þannig að maður var svolítið mikið vakandi á næturnar og sofandi á daginn til að geta haft samband við fjölskylduna. Það var ekki spennandi lífsstíll og ég var í fátækrahverfi þar sem var ekkert mikið um að vera. Þetta var alls ekki spennandi líf, fyrir utan það að spila fótbolta. Ég er þakklátur að vera kominn heim til fjölskyldunnar“ segir Elías. Fjölskyldan býr í Keflavík og sögusagnir voru á sveimi um að hann myndi semja við uppeldisfélagið, sem mun spila í Bestu deildinni næsta sumar, en Elías ætlar að vinna titla með liði Víkings. „Það voru nokkur lið sem sýndu áhuga, Keflavík þar á meðal. Uppeldisfélagið og ég hef miklar tilfinningar til þeirra, það var erfitt að velja þá ekki en mér fannst ég eiga mikið eftir og finnst meiri möguleiki á því að vinna titla hjá Víkingum“ segir Keflvíkingurinn. Elías er fjölhæfur framherji, snöggur og getur líka spilað á kantinum. „Ég kann að spila sem fremsti maður og aðrar stöður, tíuna eða kantinn. Ég get leyst margar stöður og er bara kominn til að gera mitt allra besta fyrir liðið“ segir Elías, sem á sér draum um að vinna fyrsta titilinn á ferlinum. Rætt var við Elías Má í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Íslenski boltinn Besta deild karla Víkingur Reykjavík Kína Fótbolti Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Ekitiké fór grátandi af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Sjá meira