Alfreð hættur hjá Breiðabliki Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. janúar 2026 16:13 Alfreð Finnbogason hefur kvatt Kópavoginn. vísir/Anton Alfreð Finnbogason hefur látið af störfum sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Breiðabliks og mun vitja nýrra ævintýra hjá Rosenborg í Noregi.
Alfreð tók við störfum í Kópavoginum síðla sumars 2024. Hann var þá enn spilandi leikmaður erlendis en fótboltaferlinum lauk örfáum mánuðum síðar. „Hann hefur síðan þá verið afar mikilvægur hluti af öllu okkar starfi, hvort sem horft er til uppbyggingar og þróunar meistaraflokka félagsins eða áherslna og framtíðarsýnar hjá yngri flokkunum“ segir í tilkynningu Breiðabliks. Í ráðgjafatíð Alfreðs hjá Breiðabliki var samningur þjálfarans Halldórs Árnasonar framlengdur um þrjú ár í sumar, en umdeilt er hversu mikið Alfreð hafði með það að gera. Halldór var látinn fara þegar tímabilinu í Bestu deild karla lauk og Ólafur Ingi Skúlason tók við stjórastöðunni. Alfreð var leikmaður í meistaraflokki félagsins frá 2008 til 2010 og vann bæði Íslands- og bikarmeistaratitil. „Nú þegar hann hverfur frá okkur á ný fylgja honum innilegar þakkir frá öllu stuðningsfólki Breiðabliks“ segir einnig í tilkynningu Breiðabliks. Í tilkynningu frá Rosenborg segir að Alfreð taki við starfi yfirmanns íþróttamála hjá félaginu og hafi skrifað undir samning til ársins 2030. Rosenborg endaði í 7. sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Fréttin er uppfærð.
Breiðablik Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Enski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Fleiri fréttir „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Sjá meira