Hversu lengi þolir Liverpool-fólk þennan hundleiðinlega fótbolta? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2026 11:00 Hugo Ekitike er markahæsti leikmaður Liverpool á leiktíðinni en hann er að glíma við meiðsli. Getty/Carl Recine/ Eftir hvert tapið á fætur öðru eru Englandsmeistarar Liverpool hættir að tapa leikjum en nú er það spilamennska liðsins inni á vellinum sem pirrar harða suðningsmenn félagsins.
Liverpool hefur leikið níu leiki í röð án þess að tapa en hefur ekki boðið upp á merkilegan fótbolta að undanförnu og tapaði fjórum stigum á móti Leeds United og Fulham í síðustu leikjum. Sigrarnir detta ekki í hús þessa dagana og það sem er verst að mati margra er að liðið spilar nú leiðinlegan og kraftlítinn fótbolta. Spilamennskan sem Liverpool býður upp á undir stjórn Arne Slot í dag gæti ekki verið ólíkari þungarokksfótboltanum sem liðið spilaði undir Jürgen Klopp. Jordan Chamberlain er stuðningsmaður Liverpool og hann benti á þessa staðreynd. „En það er ekki glæpsamlegt“ „[Arne] Slot til hróss hefur vörnin að mestu verið styrkt. Við erum ekki lengur að gefa mörg færi á okkur. Við erum ekki alveg opnir á miðjunni. Stundum sleppur eitt og eitt fast leikatriði í gegn og við erum seinir að loka á skot andstæðinganna, en það er ekki glæpsamlegt,“ skrifaði Jordan Chamberlain á síðu breska ríkisútvarpsins. „En þetta er hundleiðinlegt – sköpunargleðin, hraðinn og útsjónarsemin á síðasta þriðjungi vallarins er verulega af skornum skammti,“ skrifaði Chamberlain. „Vandamálið undanfarið eru ekki bara úrslitin, því við höfum efni á nokkrum jafnteflum ef við stefnum á sæti í Meistaradeildinni, heldur er það sársaukafullur hægur leikur og skortur á ákefð. Slot þarf að breyta einhverju. Aðdáendur Liverpool munu ekki sætta sig við þennan slaka fótbolta allt tímabilið,“ skrifaði Chamberlain. Hundleiðinlegt að horfa á Liverpool Liverpool gerði markalaust jafntefli í fyrsta leik nýs árs, á heimavelli á móti Leeds, en það var áfall fyrir marga stuðningsmenn Liverpool að sjá umræddan skort á ákefð og krafti í leik liðsins. Það er hreinlega orðið hundleiðinlegt að horfa á Liverpool-liðið spila og stóra spurningin er nú: Hversu lengi þola stuðningsmenn Liverpool þennan hundleiðinlega fótbolta? Næst á dagskrá er risastórt verkefni í kvöld þegar Liverpool sækir topplið Arsenal heim á Emirates-leikvanginn í Norður-London. Liðin mín reyna alltaf að spila sóknarbolta Knattspyrnustjórinn Arne Slot var spurður út í þetta á blaðamananfundi fyrir leikinn í kvöld. „Mér finnst mjög erfitt að heyra þetta en það er ekki þannig að ég sé algjörlega ósammála. Ég myndi nota önnur orð og ég myndi taka ákveðna hluti til greina. Ég vil vinna eins marga titla og ég get en ég held að ég sé líka þekktur fyrir það að liðin mín reyna alltaf að spila sóknarbolta. Ég get aðeins sagt að við erum enn að reyna að gera það,“ sagði Slot.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Sjá meira