Útför Åge Hareide fer fram í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2026 07:31 Åge Hareide í starfi sínu sem landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu. Hér var hann að stýra liðinu á móti Wales í Þjóðadeildinni. Getty/James Gill Í dag kveðja Norðmenn eina mestu fótboltagoðsögn sem landið hefur átt. Útför Åge Hareide, fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands í knattspyrnu, fer þá fram í dómkirkjunni í Molde.
Hareide lést 18. desember síðastliðinn, 72 ára að aldri, eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrr á sama ári. Norska ríkisútvarið segir frá því að klukkan 12:00 í dag að norskum tíma, klukkan 11.00 á íslenskum tíma, hefst útför Hareide og verður jarðarförin sýnd í beinni útsendingu á NRK TV, NRK 2 og TV 2. „Við erum ánægð með að útförin verði sýnd í beinni útsendingu á NRK2, NRK TV og TV2, svo að allir sem vilja kveðja í hinsta sinn, en hafa ekki tækifæri til að vera í kirkjunni, geti fylgst með athöfninni,“ skrifaði Bendik Hareide, sonur Åge Hareide, í fréttatilkynningu. Í dómkirkjunni í Molde eru sæti frátekin fyrir boðsgesti og þau sæti sem eftir eru verða í boði fyrir almenning. Nokkrir þekktir einstaklingar heima og erlendis verða viðstaddir útförina og sumir munu einnig koma fram. Yfirstjórn bæði norska og danska knattspyrnusambandsins verður viðstödd. Danska knattspyrnusambandið upplýsir TV2 um að nokkrir þekktir danskir fótboltamenn verði á staðnum. Meðal þeirra eru leikmennirnir Christian Eriksen og Simon Kjær. Einnig tekur yfirmaður knattspyrnumála sambandsins, Peter Møller, þátt. Sama gerir framherjagoðsögnin Jon Dahl Tomasson. Hann var í nokkur ár aðstoðarmaður Hareide hjá danska landsliðinu. Fyrir hönd norska knattspyrnusambandsins verða forsetinn Lise Klaveness, framkvæmdastjórinn Karl-Petter Løken og landsliðsþjálfarinn Ståle Solbakken viðstödd. Síðasta starf Åge Hareide var að vera landsliðsþjálfari Íslands frá 2023 til 2024. Auk þess að þjálfa mörg félagslið á Norðurlöndum þá þjálfaði hann einnig danska og norska landsliðið.
Norski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór grátandi af velli Sport Fleiri fréttir Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Sjá meira