„Algjör karakter og þú lýstir upp hvert sem þú fórst“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2026 06:30 Åge Hareide var jarðaður í gær en útför fyrrum landsliðsþjálfara Íslands fór fram í dómkirkjunni í Molde í Noregi. Getty/ James Gill Åge Hareide var jarðsunginn í dómkirkjunni í Molde í gær en þessi fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta lést 18. desember síðastliðinn, 72 ára að aldri, eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrr á sama ári.
Bendik Hareide, sonur Åge, hóf minningarræðu sína í jarðarförinni með kveðju á nokkrum tungumálum til fyrrverandi fótboltafélaga sem faðir hans hafði starfað hjá, þar á meðal íslensku en hann þjálfaði íslenska landsliðið frá 2023 til 2024. Það var hans síðasta þjálfarastarf á ævinni. Þú skilur eftir þig gríðarlegt tómarúm „Takk fyrir allt sem þú kenndir mér, pabbi, bæði innan vallar sem utan. Þú skilur eftir þig gríðarlegt tómarúm, en bergmálið sem við heyrum núna munum við fylla með góðum minningum,“ sagði Bendik Hareide. „Pabbi, þú varst viti. Flest okkar eru sammála um að þú hafir verið algjör karakter og þú lýstir upp hvert sem þú fórst. Alltaf fullur af sjálfstrausti,“ sagði Bendik. Margar minningarræður í kirkjunni Margir höfðu fallega hluti að segja um Hareide. Odd Ivar Moen frá Molde Fotballklubb sagði að það væri með djúpri sorg sem félagið hefði tekið við þeim tíðindum að heiðursfélagi og goðsögn félagsins, Åge Hareide, væri látinn. Einnig héldu barnabörnin, eiginkonan Annbjørg og bróðirinn Håvard minningarræður í kirkjunni. Auk þess las sóknarpresturinn Ståle Johan Aklestad kveðju frá dótturinni Anne. Kista Åge Hareide var borin út við tóna lagsins „Time to Say Goodbye“, sungið af Knut Marius Dybvik. Snortnum Bendik Hareide fannst útförin vera verðugur endapunktur. Verðug stund í anda pabba „Við höfum kvatt pabba svolítið í einrúmi, og þetta var meira fyrir almenning. En það sem var mikilvægt fyrir okkur var að fá verðuga stund í anda pabba. Það er hjartnæmt að geta staðið hér núna og hugsað að þetta hafi verið frábær upplifun,“ sagði Bendik Hareide við NRK eftir útförina. Eftir jarðarförina söfnuðust boðsgestir saman á Aker-leikvanginum til minningarathafnar. „Hér inni voru mikil tár, en núna ætlum við að rifja upp góðu minningarnar. Það verða örugglega einhver tár, en mestmegnis hlátur,“ sagði Bendik.
Norski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Sjá meira