Amanda mætt aftur „heim“ Sindri Sverrisson skrifar 9. janúar 2026 17:18 Amanda Andradóttir er mætt í búning Molde, félagsins sem pabbi hennar lék einnig með. Molde FK Íslenska landsliðskonan Amanda Andradóttir er snúin aftur „heim“ til Molde, eftir að hafa kvatt norska bæinn þegar hún var fimm ára gömul.
Amanda hafði fengið samningi sínum við Twente rift rétt fyrir jól, eftir að hafa orðið tvöfaldur meistari með liðinu í Hollandi á síðustu leiktíð og leikið með liðinu í Meistaradeild Evrópu. Þessi 22 ára, sókndjarfa knattspyrnukona er nú gengin í raðir Molde og komin aftur heim, eins og félagið orðar það á heimasíðu sinni. Amanda er fædd í Noregi árið 2003 þegar pabbi hennar, Andri Sigþórsson, var um það bil að ljúka atvinnumannsferli sínum sem leikmaður Molde. Móðir hennar er hin norska Anna Angvik Jacobsen. View this post on Instagram A post shared by Molde FK Kvinner (@moldefkkvinner) Amanda flutti fimm ára gömul til Íslands og stóð til boða að spila bæði fyrir Noreg og Ísland en valdi að lokum íslenska landsliðið sem hún hefur nú spilað 26 leiki fyrir og skorað tvö mörk. „Ég hef alltaf verið stuðningsmaður Molde og er mjög ánægð í bænum. Mér líður eins og að ég sé að koma heim. Það er spennandi verkefni í gangi hérna sem ég hef mikinn áhuga á að taka þátt í,“ sagði Amanda. Hún skrifaði undir samning við Molde sem gildir út árið 2028. Amanda hefur einnig leikið með Fortuna Hjörring og Nordsjælland í Danmörku, Vålerenga í Noregi, Kristianstad í Svíþjóð og Val á Íslandi en nú síðast Twente eins og fyrr segir.
Norski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira