Gekk í skrokk á liðsfélaga í miðjum leik Valur Páll Eiríksson skrifar 11. janúar 2026 11:00 Óhætt er að segja að Kevin Behrens hafi misst sig. Flaviu Buboi/NurPhoto via Getty Images Hegðun þýska framherjans Kevins Behrens í æfingaleik svissneska liðsins Lugano við Viktoria Plzen frá Tékklandi á föstudag er ekki til útflutnings. Hann fór illa með ungan liðsfélaga.
Lugano og Plzen áttust við í æfingaleik á Spáni, en vetrarpása er í deildum beggja liða. Eftir um sjötíu mínútna leik bar á rifrildi milli Behrens, sem er 34 ára gamall þýskur framherji, og grísks liðsfélaga hans, Giorgos Koutsias. Eitthvað voru þeir ósammála um pressu liðsins og hvernig ætti að hátta henni og úr varð hávaðarifrildi. Behrens gekk skrefinu lengra, þeystist að Koutsias og negldi hann í jörðina. „Þegiðu fíflið þitt,“ á reynsluboltinn Behrens að hafa öskrað á Koutsias, sem er 13 árum yngri, og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Kevin Behrens sammelt mal wieder Sympathiepunkte. 🎥 YT/fclugano pic.twitter.com/dTyL6Pp8rN— Nik Dömer (@nikdoemer) January 9, 2026 Myndskeið af atvikinu hefur verið sem eldur um sinu á alnetinu um helgina og það má sjá að ofan. Lugano-menn virtust missa hausinn eftir atvikið en staðan var 1-1 þegar það kom upp. Leiknum lauk 4-2 fyrir Plzen. Félagið hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um atvikið og óljóst hverjar afleiðingar þess verða.
Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira