Leita að þeim sem truflaði Mo Salah með græna ljósinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2026 10:30 Hlutirnir hafa ekki gengið upp hjá Mohamed Salah með egypska landsliðinu sem er enn að bíða eftir sínum fyrsta titli með hann innanborðs. Getty/Visionhaus Aðalflugfélag Senegals vill hjálpa senegalska fótboltalandsliðinu að vinna Egyptaland í dag og tryggja sér sæti í úrslitaleik Afríkukeppninnar en fer mjög sérstaka og jafnframt smásmugulega leið að því.
Egyptaland hefur unnið alla leiki sína í keppninni sem Mohamed Salah hefur spilað og hann er með fjögur mörk og eina stoðsendingu í þessum fjórum leikjum sínum á mótinu. Salah er fyrirliði og algjör lykilmaður egypska landsliðsins. Air Senegal tilkynnti á samfélagsmiðlum að þeir væru að leita að stuðningsmanninum sem mundaði græna leysisgeislann í undankeppnisleik Egyptalands og Senegal fyrir HM í Katar. Andlit Salah var óskýrt vegna skærgræns ljóss þegar hann bjó sig undir að taka vítaspyrnu sína, sem hann skaut yfir markið. Senegal vann vítaspyrnukeppnina í Dakar í mars 2022 þar sem Sadio Mané, fyrrum og þáverandi liðsfélagi Salah hjá Liverpool, skoraði úr úrslitaspyrnunni og tryggði Senegölum sæti á HM í Katar 2022. Flugfélagið segist ætla að borga flug og gistingu fyrir stuðningsmanninn til Marokkó fyrir undanúrslitaleikinn gegn liði Mo Salah. Alþjóðaknattspyrnusambandið sektaði seinna knattspyrnusamband Senegal um 180.000 dollara vegna óláta áhorfenda í umspilsleik liðsins fyrir HM gegn Egyptalandi, þar á meðal fyrir að beina leysibendum að kantmanninum Mohamed Salah í vítaspyrnukeppninni. Egyptar hafa ekki unnið Afríkukeppnina síðan Salah fór að spila með landsliðinu árið 2011 en hann vantar nú aðeins tvö mörk til að verða markahæsti leikmaðurinn í sögu egypska landsliðsins. Áður en Salah spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir fimmtán árum þá höfðu Egyptar unnið þrjú Afríkumót í röð eða 2006, 2008 og 2010. Liðið tapaði úrslitaleiknum 2017 og 2021 en datt úr úr sextán liða úrslitunum fyrir tveimur árum. Senegal vann Afríkukeppnina 2021 en það var fyrsti og eini titill Senegal í sögu mótsins. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Fleiri fréttir Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Sjá meira