Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir, Elísabet Arnardóttir, Sigríður Magnúsdóttir og Þóra Másdóttir skrifa 14. janúar 2026 12:30 Síðastliðið haust kom út vegleg bók á vegum SÍBS þar sem farið var yfir sögu Reykjalundar síðustu 80 árin. Þar má finna góða útlistun á þróun endurhæfingar, þar á meðal á sögu talmeinaþjónustu sem hefur verið veitt af föstum starfsmanni stofnunarinnar frá árinu 1979. Í tæp 47 ár hefur þessi þjónusta vaxið og dafnað, fyrst í einu stöðugildi en síðustu árin með tveimur starfandi talmeinafræðingum. Talmeinafræðingar hafa sinnt einstaklingum með fjölbreyttan vanda tengdan tali, máli, rödd, lestri og kyngingu. Skjólstæðingar þeirra hafa komið af öllum sviðum stofnunarinnar, þó flestir af taugasviði, enda er talmeinaþjónusta órjúfanlegur hluti af bataferli margra taugasjúkdóma. Skammsýni og niðurskurður Nýverið greindi formaður stjórnar Reykjalundar og starfandi forstjóri frá miklum fjárhagskröggum stofnunarinnar sem leiða myndu til skipulagsbreytinga. Nú er ljóst í hverju hluti af þeim breytingum felst: Það á að leggja niður talmeinaþjónustuna í heild sinni. Það læðist að manni sá grunur að hér hafi verið valin sú leið sem er auðveldust í framkvæmd; að strika út eina litla deild í heild sinni frekar en að ráðast í flóknari forgangsröðun. Slík nálgun er í senn auðveld og stórlega misráðin. Þótt deildin sé smá í sniðum innan stórrar stofnunar er vægi hennar í endurhæfingarferlinu mikið. Með því að leggja hana niður með einu pennastriki er vegið að faglegum grunni starfseminnar og skjólstæðingar rændir tækifærinu til heildrænnar endurhæfingar. Verktaka kemur ekki í stað teymisvinnu Ef stjórnendur telja að hægt sé að brúa bilið með aðkeyptri verktöku, þá lýsir það vanþekkingu á eðli starfsins. Talmeinaþjónusta á endurhæfingarstofnun snýst ekki bara um „beina þjálfun “ inni á stofu. Hún krefst náinnar samvinnu við aðrar fagstéttir, þátttöku í teymisfundum og stöðugrar eftirfylgni í daglegu umhverfi sjúklingsins. Verktaki sem kemur og fer er ekki hluti af hinu þverfaglega teymi. Hann hefur ekki sömu innsýn í heildarmyndina og fastráðið starfsfólk. Að ætla að leysa flókna endurhæfingarþörf með tímavinnu verktaka er bútasaumur, en ekki sú heildræna nálgun sem Reykjalundur hefur hingað til státað af. Þá er algjörlega litið fram hjá því að eftirspurn eftir talmeinafræðingum er mjög mikil og alveg óljóst hvernig eigi að laða þá til sín eftir þennan gjörning. Áform um að leita til Heyrnar- og talmeinastöðvar eru skrýtin þar sem sú stofnun sinnir ekki þessum hópi skjólstæðinga, auk þess sem nú liggur fyrir frumvarp í þinginu um að leggja hana niður. Afleiðingar fyrir sjúklinga Við undirritaðar, fyrrverandi starfsmenn Reykjalundar, lýsum yfir djúpri sorg og áhyggjum yfir því að sjá þessari löngu sögu talmeinaþjónustu á Reykjalundi kastað á glæ svo snögglega. Afleiðingarnar verða gífurlegar fyrir þann stóra hóp sjúklinga sem glímir við taugasjúkdóma og afleiðingar þeirra. Þá verður endurhæfing annarra sjúklingahópa, sem glíma við vanda í tali, máli, rödd eða kyngingu, einnig mun rýrari þegar sérþekkingar talmeinafræðinga nýtur ekki lengur við. Með því að fjarlægja þennan mikilvæga hlekk úr keðjunni er verið að gengisfella hugtakið „þverfagleg endurhæfing“ á Reykjalundi. Höfundar eru talmeinafræðingar og störfuðu allar sem slíkar á Reykjalundi til skemmri eða lengri tíma á árunum 1979-2022. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Skoðun Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason skrifar Skoðun Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar
Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar