Sigfús í sexuna! Mörður Árnason skrifar 17. janúar 2026 09:01 Allskonar fólk er í framboði í forvali Samfylkingarinnar (laugardaginn 24. !) og slegist um fyrstu sætin. En hin sætin skipta líka máli, því þar eiga að að vera vinnuhestarnir og navígatorarnir sem forustumennirnir geta reitt sig á. Þeir eru rkki síður mikilvægir, ræðararnir í skut. Ég hef þekkt Sigfús Ómar Höskuldsson í um það bil áratug. Við kynntumst sem stjórnarmenn í Samfylkingarfélaginu í Reykjavík ‒ á fyrsta fundinn kom ég í KR-flíspeysunni minni, en þá var Sigfús í ÍR-gallanum ‒ og þar með hófst samvinna og samræður sem síðan hafa staðið samfellt með miklum blóma. Sigfús er jafnaðarmaður af lífi og sál, og hann er maður sem hægt er að treysta í verkum. Þegar hann tekur eitthvað að sér, sem er oft, þá þarf ekki að hafa frekari áhyggjur af því máli. Sama hvort það eru fundarhöld, fjármálareddingar, útihátíð og pulsugrill, framlag í stefnumótun, pólitískar djúpsiglingar ‒ eða bara að hafa fólk gott og hugga þá sem þarf að hugga. Sigfús er bæði rafmagnsiðfræðingur og rekstrarfræðingur, kann fótboltaþjálfun og er trommuleikari með slagverkspróf, og faðir þriggja drengja !‒ en starfar núna aðallega við ferðamennsku ‒ að sýna gestum hina miklu sameiginlegu auðlind okkar, náttúruna, sem honum þykir svo vænt um. Hann gefur kost á sér í sjötta sætið í forvalinu, og sleggjan í kosningabaráttunni er: „Sigfús í sexuna“ … Ég mæli eindregið með Sigfúsi Ómari Höskuldssyni í næstu borgarstjórnarsveit Samfylkingarinnar. Höfundur er Samfylkingarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Skoðun Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Allskonar fólk er í framboði í forvali Samfylkingarinnar (laugardaginn 24. !) og slegist um fyrstu sætin. En hin sætin skipta líka máli, því þar eiga að að vera vinnuhestarnir og navígatorarnir sem forustumennirnir geta reitt sig á. Þeir eru rkki síður mikilvægir, ræðararnir í skut. Ég hef þekkt Sigfús Ómar Höskuldsson í um það bil áratug. Við kynntumst sem stjórnarmenn í Samfylkingarfélaginu í Reykjavík ‒ á fyrsta fundinn kom ég í KR-flíspeysunni minni, en þá var Sigfús í ÍR-gallanum ‒ og þar með hófst samvinna og samræður sem síðan hafa staðið samfellt með miklum blóma. Sigfús er jafnaðarmaður af lífi og sál, og hann er maður sem hægt er að treysta í verkum. Þegar hann tekur eitthvað að sér, sem er oft, þá þarf ekki að hafa frekari áhyggjur af því máli. Sama hvort það eru fundarhöld, fjármálareddingar, útihátíð og pulsugrill, framlag í stefnumótun, pólitískar djúpsiglingar ‒ eða bara að hafa fólk gott og hugga þá sem þarf að hugga. Sigfús er bæði rafmagnsiðfræðingur og rekstrarfræðingur, kann fótboltaþjálfun og er trommuleikari með slagverkspróf, og faðir þriggja drengja !‒ en starfar núna aðallega við ferðamennsku ‒ að sýna gestum hina miklu sameiginlegu auðlind okkar, náttúruna, sem honum þykir svo vænt um. Hann gefur kost á sér í sjötta sætið í forvalinu, og sleggjan í kosningabaráttunni er: „Sigfús í sexuna“ … Ég mæli eindregið með Sigfúsi Ómari Höskuldssyni í næstu borgarstjórnarsveit Samfylkingarinnar. Höfundur er Samfylkingarmaður
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun