„Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Sindri Sverrisson skrifar 19. janúar 2026 09:31 Liam Rosenior er ekki með mikla áru yfir sér, segir Adda Baldursdóttir í Sunnudagsmessunni. Getty/David Horton Þó að Chelsea hafi unnið 2-0 sigur gegn Brentford í fyrsta deildarleiknum undir stjórn Liam Rosenior eru sérfræðingar Sunnudagsmessunnar efins um að hann sé rétti maðurinn til að leiða liðið.
Kjartan Atli Kjartansson benti á það í þættinum á Sýn Sport í gær að Rosenior væri sjöundi stjóri Chelsea á síðustu sjö árum. „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn,“ sagði Bjarni Guðjónsson en brot úr þættinum má sjá hér að neðan: Klippa: Messan - Umræða um Roenior „Hann gerir tíu ára samning, samkvæmt einhverjum fréttum. Ég er ekki viss um að hann stoppi svo lengi,“ sagði Bjarni hálfhlæjandi og bætti við: „Stór lið þurfa stóra stjóra.“ Bjarni virtist hrifnari af því hvernig málum er háttað hjá Brentford, sem eftir að hafa misst Thomas Frank til Tottenham er engu að síður í 7. sæti, stigi á eftir Chelsea og aðeins þremur stigum frá 4. sæti. „Þar virðist vera maður sem sem veit nákvæmlega hvað hann er að gera þegar hann ræður stjóra,“ sagði Bjarni um Brentford, minna hrifinn af Rosenior: „Ég er ekki sannfærður um að þetta sé það sem að Chelsea þarf akkúrat núna.“ „Ekki með mikla áru yfir sér“ Adda Baldursdóttir tók undir með Bjarna og ljóst að þó að hinn 41 árs gamli Rosenior hafi gert fína hluti með Strasbourg í Frakklandi þá hefur hann margt að sanna. „Mér finnst hann ekki með mikla áru yfir sér. Auðvitað er Chelsea vant því að vilja taka inn stór nöfn en þarna er ungur þjálfari sem gerði vel fyrir systurfélag Chelsea. Hann verður ekki þarna til tíu ára. Það komu tveir leikmenn inná með miða, svo það er mikið af upplýsingum sem verið er að koma til þeirra á stuttum tíma. Og maður sér alveg breytingu á því hvernig þeir eru að spila. En þetta er ekki stjóri sem mun sitja út samninginn sinn,“ sagði Adda.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira