Reykjavík á ekki að reka byggingarfélag Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar 20. janúar 2026 07:30 Í borgarstjórn er nú til umræðu tillaga um nýtt uppbyggingarlíkan til að tryggja framboð hagkvæmra íbúða. Markmiðið er skiljanlegt og brýnt. Það er að hraða uppbyggingu félagslegs húsnæðis í borginni. Þörfin er raunveruleg og enginn dregur hana í efa. En góð markmið duga ekki ein og sér. Leiðin sem valin er skiptir sköpum. Viðreisn í Reykjavík mótmælir því harðlega að Reykjavíkurborg ætli inná uppbyggingarmarkað húsnæðis og stofni opinbert byggingarfélag. Þegar borgin ætlar að taka yfir húsnæðisuppbyggingu Tillaga meirihlutans felur í sér að kanna sérstaklega hvort Reykjavíkurborg, Félagsbústaðir eða jafnvel nýtt félag á þeirra vegum eigi að koma með beinum hætti að uppbyggingu íbúða. Með öðrum orðum: að borgin færist inn í hlutverk framkvæmdaraðila á húsnæðismarkaði. Þetta er ekki smávægileg breyting. Þetta er stefnumótandi ákvörðun sem getur haft víðtækar afleiðingar. Reykjavíkurborg á að móta leikreglurnar á húsnæðismarkaði, ekki gerast sjálf byggingaraðili. Borgin á ekki að verða verktaki Í áratugi hefur skýr verkaskipting verið á uppbyggingarmarkaði. Almenni markaðurinn byggir húsnæði og undanfarin ár hafa byggingarfélög í eigum verkalýðshreyfingar komið inn á þann markað. Borgin stýrir með skipulagi, reglum og skýrum kröfum. Borgin setur sér félagsleg markmið sem eru tryggð og við í Viðreisn höfum stutt enda erum við fylgjandi fjölbreyttum húsnæðismarkaði og félagslegri blöndun. Við erum ekki sammála því að borgin taki sjálf að sér framkvæmdir. Ef borgin fer að byggja sjálf breytast forsendurnar: ábyrgð, áhætta og kostnaður færast beint inn á borgarsjóð. Áhættan lendir alltaf hjá borgarbúum Uppbygging húsnæðis er flókin, kostnaðarsöm og áhættusöm. Þegar hið opinbera stígur inn í hlutverk framkvæmdaraðila minnkar sveigjanleiki og skuldbindingar verða langvarandi. Í lok dagsins er það almenningur sem ber áhættuna. Fjölbreyttar leiðir til uppbyggingar mega aldrei verða afsökun fyrir því að borgin taki yfir hlutverk sem markaðurinn er betur í stakk búinn til að sinna. Reykjavíkurborg skortir ekki tæki til að tryggja framboð hagkvæmra íbúða. Skipulagsvaldið er eitt öflugasta stjórntæki sem borgin hefur. Með lóðaúthlutunum, kröfum í deiliskipulagi og skýru samstarfi við markaðinn er hægt að knýja fram félagslega blöndun og hagkvæmni án þess að borgin taki sjálf að sér uppbygginguna. Við eigum að nýta styrk skipulagsvaldsins, ekki taka yfir áhættuna af uppbyggingu. Góð markmið réttlæta ekki ranga leið Þetta snýst um ábyrgð, skýra verkaskiptingu og sjálfbærni í opinberum fjármálum. Reykjavíkurborg á ekki að verða byggingarfélag. Hún á að vera sterkur, skýr og ábyrgur stefnumótandi aðili. Ef við opnum dyr fyrir óljósa verkaskiptingu og aukinn rekstur borgarinnar á sviði uppbyggingar er hætta á að við festumst í lausnum sem verða bæði dýrar og erfiðar að snúa við. Góð markmið eru góð og gild en leiðin skiptir öllu. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Borgarstjórn Húsnæðismál Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar