Evrópa lætur ekki undan hótunum Trumps um Grænland Kristján Vigfússon skrifar 20. janúar 2026 15:01 Síðustu mánuði og vikur hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti hótað reglulega að yfirtaka Grænland sem hann hefur krafist að verði hluti af bandarísku landssvæði. Fyrstu viðbrögð Evrópu hafa verið varfærin og reynt hefur verið að tala forsetann til, maður hefur gengið undir mann til að koma einhverri skynsemi að og róa manninn en án árangurs. Nokkur ríki, þar á meðal Frakkland, Noregur og Svíþjóð, hafa þegar sent herlið til Grænlands fyrst og fremst í táknrænum tilgangi til að styðja við dani og þeirra eftirlit á svæðinu. Framvindan er hröð og um helgina tilkynnti Trump (þrátt fyrir að hafa samþykkt samráðshóp um málið með Grænlendingum og Dönum nokkrum dögum fyrr) að hann ætlaði að knésetja alla mótspyrnu með það að markmiði að knýja fram yfirtöku Grænlands með refsitollum á innflutning frá átta evrópuríkjum. Donald Trump sakar sem sagt Danmörku, Þýskaland, Frakkland, Noreg, Svíþjóð, Finnland, Bretland og Holland um að grafa undan öryggishagsmunum Bandaríkjanna. Refsingin eru tollar. Óhætt er að fullyrða að ekki hafi risið upp alvarlegri ágreiningur milli aðildarríkja NATO frá stofnun þess. Miðað við viðbrögð þjóðarleiðtoga evrópuríkja er ljóst að þolinmæðin er á þrotum og yfirlýsing Trump er dropinn sem fyllti mælinn. Forsætisráðherrar Þýsklands, Frakklands og fjölda annarra evrópuríkja hafa harðlega mótmælt áformum Trumps og tíðir neyðarfundir haldnir um málið innan Evrópusambandsins (ESB) um helgina. Forsætisráðherra Ítalíu Meloni og Starmer forsætisráðherra Bretlands sem hafa verið í náðinni hjá Trump hafa einnig risið upp og harðlega mótmælt bæði áformum hans um yfirtöku Grænlands og þeim hefndartollum sem hann hótar. Forsætis- og utanríkisráðherra Íslands hafa mótmælt af fullum þunga og minnt á það að virða beri fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Samhliða vaxandi spennu vegna ofurtolla, einangrunarstefnu og linnulausra hótana forseta Bandaríkjanna gagnvart Evrópu hefur ESB tekið stórstíg skref til að efla viðskipti og fríverslun með því að undirrita stærsta viðskiptasamning sögunnar. Þann 17. janúar sl. undirrituðu leiðtogar ESB og Mercosur-ríkjanna í Suður-Ameríku langþráðan fríverslunarsamning í Asunción höfuðborg Paragvæ eftir margra ára samningaviðræður. Ursula von der Leyen forseti Framkvæmdastjórnarinnar lýsti samningnum sem „stærsta fríverslunarsvæði í heimi“ sem nái til yfir 700 milljóna íbúa og taki til allt að 20% af vergri landsframleiðslu heimsins. Samningurinn er mikilvægt pólitískt útspil gegn einangrunar- og tollastefnu Trumps, en talið er að evrópsk fyrirtæki muni spara um fjóra milljarða evra árlega í útflutningsgjöld vegna afnáms tolla á bíla, lyf og vélar, auk þess að tryggja aðgang að mikilvægum hráefnum fyrir orkuvinnslu. Viðræður ESB um fríverslunarsamning við Indland eru einnig á lokastigi og gætu leitt til undirritunar í Delhi síðar í þessum mánuði. Þessi samningur, sem indverskir ráðamenn hafa kallað „móður allra viðskiptasamninga,“ mun opna markað sem nær til fjórðungs mannkyns. Samningur ESB kleift að auka viðskipti sín og dýpka tengsl sín við ört vaxandi hagkerfi í Asíu. Þessir tveir samningar sýna að ESB hefur ekki bara vilja heldur mikla getu til að svara tollahótunum Trumps með því að fjölga og dýpka fríverslunarsamninga við einstök ríki og ríkjabandalög og draga þannig úr efnahagslegu mikilvægi bandaríska markaðarins. Markmiðið er ekki síður að losa sambandið undan því að vera háð geðþóttaákvörðunum og duttlungum frá Washington. Athyglisvert er að Kanada er í sömu vegferð eftir að hafa skrifað nýlega undir nýjan fríverslunarsamning við Kína til að draga úr áhrifum tollastríðs Trumps á almenning í Kanada. Höfundur er aðjúnkt og doktor í Strategíu við Háskólann í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Skósveinar í Samfylkingunni? Teitur Atlason Skoðun Börnin í Laugardal eiga betra skilið Róbert Ragnarsson Skoðun Eru fjáröflunarherferðir KÍ, Mottumars og Bleika slaufan, siðferðilega réttlætanlegar? Einar Páll Svavarsson Skoðun Aðalsteinn, finnst þér þetta vera í lagi? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Lausnin við öllum vandamálum menntakerfisins Stein Olav Romslo Skoðun Einn deilibíll kemur í stað 16 einkabíla Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Borgarstjóri sem dreifir valdi Bjarni Karlsson Skoðun Að framleiða 5200 málsverði á dag - er ekki á allra færi... Margrét Sigrún Björnsdóttir Skoðun Er Kópavogsmódelið fullkomið ? Gunnar Gylfason Skoðun Ísland–Kanada Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hversdagurinn er ævintýri Skúli S. Ólafsson skrifar Skoðun Lærdómur frá Grænlandi um fæðuöryggi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Staðan á húsnæðismarkaði orsök fátæktar einstaklinga og fjölskyldna – Hugmynd að lausn við bráðavanda Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ísland–Kanada Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæð þróun í leikskólamálum Skúli Helgason skrifar Skoðun Eru fjáröflunarherferðir KÍ, Mottumars og Bleika slaufan, siðferðilega réttlætanlegar? Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Einn deilibíll kemur í stað 16 einkabíla Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Að framleiða 5200 málsverði á dag - er ekki á allra færi... Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar Skoðun Lestrarkennsla íslenskra barna Ingibjörg Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Er Kópavogsmódelið fullkomið ? Gunnar Gylfason skrifar Skoðun Orðum fylgir ábyrgð – líka þegar rætt er um loftslagsbreytingar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Uppbygging félagslegs húsnæðis – með fólkið í forgrunni Ellen Calmon skrifar Skoðun Guðmundur til þjónustu í velferðarmálum Guðbjörg Sveinsdóttir,Arndís Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Orðræða sem sameinar – ekki sundrar Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af bambus í Vesturbugt og 14 mínútna leikriti Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Skál fyrir betri heilsu! Lára G. Sigurðardóttir,Valgerður Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Guðmund Inga í 3. sætið Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Skósveinar í Samfylkingunni? Teitur Atlason skrifar Skoðun Ákærandi, dómari og böðull Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Lausnin við öllum vandamálum menntakerfisins Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Borgarstjóri sem dreifir valdi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Áætlun um öryggi og fjárfestingu í innviðum Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki hægt að jafna dánaraðstoð við sjálfsvíg Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hreint ekki eins og atvinnuviðtal Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Aðalsteinn, finnst þér þetta vera í lagi? Ingólfur Ásgeirsson skrifar Skoðun Börnin í Laugardal eiga betra skilið Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Stjórnmálamaður metinn að verðleikum Þórarinn Snorri Sigurgeirsson skrifar Skoðun Magnea Marinósdóttir á brýnt erindi í borgarstjórn Hörður Filippusson skrifar Skoðun Borgin sem við byggjum er borg allra Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Evrópa lætur ekki undan hótunum Trumps um Grænland Kristján Vigfússon skrifar Sjá meira
Eru fjáröflunarherferðir KÍ, Mottumars og Bleika slaufan, siðferðilega réttlætanlegar? Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Staðan á húsnæðismarkaði orsök fátæktar einstaklinga og fjölskyldna – Hugmynd að lausn við bráðavanda Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Eru fjáröflunarherferðir KÍ, Mottumars og Bleika slaufan, siðferðilega réttlætanlegar? Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Að framleiða 5200 málsverði á dag - er ekki á allra færi... Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar
Skoðun Guðmundur til þjónustu í velferðarmálum Guðbjörg Sveinsdóttir,Arndís Vilhjálmsdóttir skrifar
Eru fjáröflunarherferðir KÍ, Mottumars og Bleika slaufan, siðferðilega réttlætanlegar? Einar Páll Svavarsson Skoðun