Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2026 06:43 Michael Schumacher varð sjö sinnum heimsmeistari í Formúlu 1 en hann hefur ekki sést opinberlega síðan hann lenti í skíðaslysinu fyrir meira en tólf árum síðan. Getty/Lars Baron Heilsufar Michaels Schumacher er enn hulið umheiminum en nú segjast breskir fjölmiðlar hafa sjaldgæfar upplýsingar um líf formúlu 1-goðsagnarinnar.
Hinn 57 ára gamli Michael Schumacher slasaðist alvarlega í skíðaslysi árið 2013. Síðan þá hefur heilsufar formúlu 1-goðsagnarinnar verið hulið leyndardómi. Ástæðan er sú að Schumacher-fjölskyldan hefur meðvitað valið að deila ekki upplýsingum um föður sinn og eiginmann með almenningi. Aðeins um tuttugu traustum einstaklingum er heimilt að heimsækja hann eða vita um aðstæður hans. Michael Schumacher 'not bedridden' but 'cannot walk' as major health update on F1 icon emerges https://t.co/ulK7WpxVvQ— GB News (@GBNEWS) January 24, 2026 Formúlu 1-fréttamaðurinn Felix Görner er einn af örfáum blaðamönnum sem hafa getað fylgst nánar með aðstæðum Schumachers í gegnum árin. „Ástandið er mjög sorglegt. Hann þarfnast stöðugrar umönnunar og er algjörlega háður umönnunaraðilum sínum. Og hann getur ekki lengur tjáð sig með orðum,“ hefur Felix Görner sagt áður. Nú segist Daily Mail hafa nýjar upplýsingar um Michael Schumacher og líf hans á heimili sínu á Majorka. Schumacher, sem lengi lá í dái, er sagður ekki vera algjörlega rúmliggjandi. Samkvæmt nokkrum heimildum breska blaðsins er Schumacher vissulega háður hjólastól. Í hjólastólnum fær Schumacher hjálp frá hjúkrunarfræðingum og meðferðaraðilum við að komast um – bæði í og við setrið á Majorka. Á sama tíma er aðalheimili fjölskyldunnar enn sagt vera húsið í Gland í Sviss, þótt fjölskyldan dvelji reglulega á Majorka. Michael Schumacher er einn fremsti formúlu 1-ökumaður allra tíma. Þjóðverjinn vann sjö heimsmeistaratitla á ferli sínum. Happy birthday Michael Schumacher 🎂🏆 7 Championships🥇 91 Wins🏅 155 Podiums🐐 5 Grand Slams🟪 68 Pole Positions#KeepFightingMichael pic.twitter.com/Rca1Nlq0Zs— La Gazzetta Ferrari (@GazzettaFerrari) January 3, 2026
Skíðaslys Michael Schumacher Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Man. City - Newcastle | Hvaða lið mætir Arsenal á Wembley? Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira