Heiðdís leggur skóna á hilluna Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. janúar 2026 15:32 Heiðdís hefur ákveðið að hætta í fótbolta. Heiðdís Lillýardóttir, Íslands- og bikarmeistari með Breiðablik, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Heiðdís verður þrítug á árinu en hún hóf meistaraflokksferilinn aðeins fjórtán ára gömul með liði Hattar á Egilsstöðum. Hún skipti til Selfoss og steig skrefið upp í efstu deild árið 2015. Árið 2017 gekk hún svo til liðs við Breiðablik og spilaði í Kópavoginum til 2022, þegar hún hélt út í atvinnumennsku. Hún var um skeið hjá Benfica í Portúgal en skipti svo til Sviss. Dvölin hjá Basel entist aðeins í rúmt ár og Heiðdís sneri aftur heim, barnshafandi, árið 2024. Hún endaði ferilinn svo sem Íslands- og bikarmeistari með Breiðablik sumarið 2025 og spilaði samanlagt 22 leiki. Heiðdís á átján landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. View this post on Instagram „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið en ætla að segja bless… í bili….. því maður veit aldrei“ skrifar Heiðdís í færslu á Instagram.„Litla ég frá Egilsstöðum hefði verið svo stolt að sjá allt sem ég hef upplifað í gegnum fótboltann. Öll aukavinnan skilaði sér svo sannarlega. Ég hafði rosalega mikla ástríðu og keppnisskap sem barn og átti mér stóra drauma en aldrei hefði mér dottið í hug að ég myndi vinna alla þessa titla, spila alla þessa stóru leiki í 16 liða úrslitum í Meistaradeildinni og Evrópukeppninni og fara út í atvinnumennsku til tveggja landa. Fótboltinn hefur verið númer 1, 2 og 3 nánast allt mitt líf. Ég gaf mig alla í þetta, barðist fyrir liðin mín og tók á móti öllum mótlætum með höfuðið hátt og hélt áfram. Ástríðan var það mikil að þetta var allt saman þess virði. Ég geng södd og sátt frá borði og sé ekki eftir neinu. Allt fólkið sem ég hef kynnst og lært af er samt það sem stendur uppúr. - Þjálfarar og sjúkraþjálfarar sem ég lít upp til og mun leita ráða til í framtíðinni og liðsfélagar/vinkonur sem munu fylgja mér í gegnum lífið. Verð alltaf svo þakklát fyrir öll þessi ár. Takk fyrir mig.“
Besta deild kvenna Breiðablik Evrópubikar kvenna í fótbolta Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Enski boltinn Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Íslenski boltinn Fleiri fréttir Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Sjá meira