Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Sindri Sverrisson skrifar 28. janúar 2026 08:31 Böðvar Böðvarsson hefur verið í stóru hlutverki hjá FH en virðist ekki eiga sér framtíð hjá félaginu. vísir Fótboltamaðurinn Böðvar Böðvarsson, sem var varafyrirliði FH, er ekki inni í áætlunum nýs þjálfara liðsins, Jóhannesar Karls Guðjónssonar, og má finna sér nýtt félag.
Þetta staðfesti Böðvar sjálfur við Fótbolta.net í gær eftir að Kristján Óli Sigurðsson greindi frá tíðindunum á X. Böðvar Böðvarsson hefur yfirgefið FH. Kvaddi liðsfélaga sina áðan.#HeimavinnaHöfðingjans pic.twitter.com/tHe6BimXGv— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) January 27, 2026 Böðvar, sem er þrítugur, er uppalinn FH-ingur og hefur einungis spilað með FH hér á landi en einnig spilað erlendis, í Póllandi og Svíþjóð. Hann sneri heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið 2024 og er með samning við FH sem gildir út árið 2027. Sá samningur er enn í gildi en Böðvari er eins og fyrr segir frjálst að finna sér nýtt félag og ljóst að það fer illa í suma af stuðningsmönnum FH. Böddi er FH.Sem FH-ingur að þá skammast ég mín.FH er í hafinu á svo mörgum stöðum.Böddi stýrir klefanum og er fyrirmyndin þarna. Leikmenn eru í sjokki.— Max Koala (@Maggihodd) January 27, 2026 Böðvar, sem er vinstri bakvörður, lék 26 af 27 deildarleikjum FH á síðustu leiktíð, undir stjórn Heimis Guðjónssonar, og skoraði tvö mörk. Jóhannes Karl tók við FH í vetur og sagði þá í viðtali við Vísi að sér þætti of mikið af gömlum leikmönnum í Bestu deildinni. „Það sem hefur verið mjög sérstakt við íslensku deildina undanfarin ár, þó það hafi sem betur fer verið að lagast, þá hefur þetta verið alltof gömul deild. Í alltof langan tíma höfum við verið að spila liðum sem hafa verið með um 30 ára meðalaldur,“ sagði Jóhannes. Slík sé ekki raunin í nágrannalöndunum. „Ef við lítum til Noregs eða Danmerkur er meðalaldur bestu liða í efstu deild í kringum 25 til 26 ár eða eitthvað svoleiðis. Of lengi hefur verið spilað á of gömlum leikmönnum á Íslandi, að mínu viti. Ég fagna því að lið séu farin aðeins að endurhugsa sína nálgun á leikmannamarkaði,“ sagði Jóhannes, staðráðinn í að yngja upp FH-liðið en um leið að koma því aftur í fremstu röð. „Félagið hefur farið í stefnumótun og það er komin strategía sem á að fylgja. Inni í því, sem snýr að meistaraflokki karla, er að hafa hann sem vettvang fyrir unga efnilega og góða leikmenn innan félagsins að láta ljós sitt skína,“ sagði Jóhannes og bætti við: „Auðvitað þurfa menn að vera tilbúnir að leggja á sig ansi mikla vinnu til að komast þangað. Það er ekki auðvelt að komast í meistaraflokk FH. Að sama skapi erum við að skoða unga og efnilega leikmenn á öllu landinu sem passa inn í þetta módel sem við erum að reyna að framfylgja,“
Besta deild karla FH Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Sjá meira