Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley

Sindri Sverrisson skrifar
Gabriel Martinelli með Marc Cucurella á bakinu í leiknum í kvöld.
Gabriel Martinelli með Marc Cucurella á bakinu í leiknum í kvöld. Getty/Clive Mason

Arsenal gaf aldrei nein færi á sér í seinni leiknum við Chelsea í kvöld þegar liðin gerðu markalaust jafntefli, í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta.

Arsenal vann leikinn í kvöld 1-0 með sigurmarki frá Kai Havertz augnabliki áður en flautað var til leiksloka. Þar með vann Arsenal einvígið 4-2 og mætir annað hvort Manchester City eða Newcastle í úrslitaleik keppninnar 22. mars.

Óhætt er að segja að leikurinn í kvöld hafi verið tíðindalítill og Arsenal gekk vel að verja forskotið frá fyrri leiknum.

Chelsea skapaði sér varla færi og allt stefndi í markalaust jafntefli en á sjöttu mínútu uppbótartíma, þegar Chelsea hafði tekið áhættu og reynt að fjölga í sókninni, sluppu heimamenn í skyndisókn og varamaðurinn Havertz skoraði auðveldlega einn gegn markverði, á móti sínu gamla félagi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira