Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2026 07:14 Hiti verður kringum frostmark að deginum. Vísir/Vilhelm Lægðasvæði suður í hafi og hæð fyrir norðan land beina enn austlægri átt til landsins. Víða verður gola eða kaldi í dag en allhvass vindur syðst á landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að austanáttin sé heldur svalari en síðustu daga og því megi búast við éljum austanlands, en á vestanverðu landinu verði yfirleitt þurrt og bjart veður. Hiti kringum frostmark að deginum. „Svipað veður fram eftir degi á morgun, en síðdegis ganga skil inn yfir suðaustur- og austurhluta landsins með snjókomu, slyddu eða rigningu. Á þessum slóðum má búast við talsverðri úrkomu um tíma og líkur á að færð spillist á fjallvegum um stundar sakir. Annað kvöld og aðra nótt ganga skilin vestur yfir landið með einhverri úrkomu í flestum landshlutum, en á föstudag er svo útlit fyrir meinlausa austlæga átt með dálitlum skúrum eða éljum á víð og dreif,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan 13-18 m/s við suðausturströndina, annars hægari vindur. Víða él, en bjart að mestu um landið vestanvert. Hiti um eða undir frostmarki. Snjókoma, slydda eða rigning á Suðaustur- og Austurlandi síðdegis, og einnig vestantil seint um kvöldið. Hlýnar heldur. Á föstudag: Austan 5-13 m/s og dálitlar skúrir eða él, en birtir til á vesturhelmingi landsins. Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost um landið norðaustanvert. Kólnar síðdegis. Á laugardag og sunnudag: Norðaustan og austan 5-13 og él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hiti um eða undir frostmarki. Á mánudag: Austan- og norðaustanátt og rigning, slydda eða snjókoma með köflum. Hlýnar í veðri. Á þriðjudag: Austlæg átt. Rigning eða slydda með köflum austanlands, annars úrkomulítið.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira