Viðskipti innlent

Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR

Árni Sæberg skrifar
Svona líta verslanir SPAR út.
Svona líta verslanir SPAR út. Drangar

Drangar, móðurfélag Samkaupa, hafa skrifað undir samning við alþjóðlegu verslunarkeðjuna SPAR International um notkun vörumerkisins hérlendis. Markmið samningsins er að í lok árs 2027 muni verslanir undir merkjum 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar bera alþjóðlegt vörumerki SPAR. Eftir innleiðinguna mun Samkaup selja matvöru undir vörumerkjunum Prís, Nettó og SPAR.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að verslanir SPAR bjóði upp á fjölbreytt úrval matvöru, tilbúinna rétta og annarrar dagvöru frá birgjum um allan heim. Gert sé ráð fyrir lægra vöruverði í verslunum sem reknar verða undir vörumerki SPAR, meðal annars vegna aðgengis að alþjóðlegum samningum SPAR við stærstu birgja heims. Með þessum samningi fái Samkaup aðgang að þekkingu og reynslu SPAR International, sem reki eitt stærsta smásölunet í heimi.

SPAR hafi verið stofnað í Hollandi árið 1932 og reki í í dag verslunarnet með yfir 13.800 verslanir í 50 löndum. Starfsemi SPAR sé víða innan Evrópusambandsins eða í 18 af 27 aðildarríkjum og þjónusti um 14,7 milljónir neytenda daglega.

Samkaup hf. er verslunarfyrirtæki á dagvörumarkaði sem rekur 60 verslanir um allt land. Samkaup er dótturfélag Dranga hf.

„Samningurinn við SPAR opnar Samkaupum fjölmörg tækifæri um betra verð, þjónustu og upplifun í verslunum okkar hér á landi. Starfsfólk Samkaupa sem býr yfir áratuga þekkingu á íslenskum matvörumarkaði fær tækifæri til að kynna sér aðferðir og leiðir sem skilað hafa árangri á alþjóðamörkuðum og aðlaga þær að aðstæðum hér heima. Þannig færum við heimsverslun heim í hérað. Samstarf við alþjóðlegan verslunarrisa styður okkar vegferð og er jafnframt mikilvægur áfangi í vexti og viðgangi Dranga sem er nýstofnað móðurfélag framsækinna rekstrarfélaga á innlendum neytendavörumarkaði,“ er haft eftir Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga.

„Við erum stolt af því að opna SPAR á Íslandi í samstarfi við Dranga sem munu nýta alþjóðlega sérþekkingu SPAR og saman munum við aðlaga hið rótgróna og sannreynda alþjóðlega vöruframboð SPAR að þörfum heimamarkaðarins. Með því að sameina þekkingu Dranga á markaðinum og viðurkenndan árangur SPAR endurspeglum við leiðarljós SPAR um að saman séum við betri. Þannig knýjum við áfram sjálfbæran vöxt með sameiginlegan árangur að leiðarljósi,“ er haft eftir Tobias Wasmuht, forstjóri SPAR International.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×