Ónýtt tækifæri í heilbrigðiskerfinu Kristján Jón Jónatansson skrifar 6. febrúar 2026 17:03 Bið eftir heilbrigðisþjónustu er mörgum erfið og þungbær. Á meðan fólk bíður eftir nauðsynlegri meðferð skerðist oft starfsgeta og í sumum tilvikum verður fólk tímabundið eða varanlega óvinnufært. Afleiðingarnar snerta því ekki aðeins einstaklingana sjálfa heldur samfélagið allt. Því miður er þetta raunveruleiki margra Íslendinga í dag. Ljóst er að til að vinna á biðlistum þarf að nýta allt heilbrigðiskerfið með markvissum hætti. Nýverið gerði Klíníkin langtímasamning við Sjúkratryggingar Íslands um lýðheilsutengdar aðgerðir með það að markmiði að bæta aðgengi sjúklinga að þjónustu, stytta biðlista og létta álagi af opinberum sjúkrahúsum. Margir fögnuðu þessum tímamótum, ekki síst þeir sem hafa beðið mánuðum saman eftir meðferð sem samningurinn nær til. Samningurinn mætir þó aðeins hluta af uppsafnaðri þörf enda er biðtími eftir sumum aðgerðum allt að tvö ár sem er bæði einstaklingum og samfélaginu dýrkeypt. Reglulega berast svo fréttir af kollegum okkar sem starfa við þröngan húsakost, glíma við endurtekin hópsmit og búa við ófullnægjandi aðstæður fyrir bæði sjúklinga og starfsfólk. Þá hefur ítrekað þurft að fresta skurðaðgerðum vegna skorts á legurýmum. Á sama tíma hefur Klíníkin að jafnaði 15–20 legurými laus til afnota á degi hverjum. Einnig væri hægt að nýta aðra þætti starfseminnar enn betur, þar á meðal skurðstofur Klíníkurinnar þótt nýting þeirra teljist almennt góð í dag. Í fréttum vikunnar var enn á ný vísað til alvarlegrar stöðu á mörgum vígstöðvum Landspítalans. Þar var jafnframt vísað til minnisblaðs þar sem fram kom að haldi þróunin áfram óbreytt þurfi í auknum mæli að vísa sjúklingum til annarra sjúkrahúsa á Norðurlöndum. Í því samhengi hlýtur að vakna sú spurning hvort ekki væri rétt að líta sér nær áður en gripið yrði til slíkra úrræða. Aukin samvinna innanlands myndi ekki leysa öll vandamál heilbrigðiskerfisins, en hún gæti stytt biðlista, aukið öryggi sjúklinga og létt verulega undir með starfsemi Landspítalans. Kostnaður slíks samstarfs væri jafnframt fyrirsjáanlegur, þar sem fyrirfram yrði samið um umfang og framkvæmd þjónustunnar. Sú staðreynd að heilbrigðiskerfið ræður illa við hlutverk sitt kallar á breytta nálgun. Tækifærin eru til staðar, spurningin er hvort viljinn sé það einnig. Höfundur er framkvæmdastjóri Klíníkurinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar