Stefnt að stjórnleysi í ríkisfjármálunum Sigurður Örn Hilmarsson skrifar 7. febrúar 2026 08:33 Það þarf ekki hagfræðimenntun til að átta sig á því að það er óskynsamlegt að lögfesta sjálfvirka aukningu ríkisútgjalda algjörlega óháð stöðu efnahagslífsins hverju sinni og getu ríkissjóðs til að standa undir útgjöldunum. Engu að síður er nú til umfjöllunar á Alþingi frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra sem gerir nákvæmlega þetta, þ.e. tengir allra greiðslur almannatryggingakerfisins við launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag. Þetta er stór mál, enda væru þessar greiðslur, sem nema nú um 20% fjárlaga, þá komnar á sjálfstýringu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Jafn ótrúlegt og það kann að hljóma þá er þetta tilgangurinn; að binda hendur ríkissjóðs með ósjálfbærum og sjálfvirkum útgjaldavexti óháð stöðu efnahagsmála hverju sinni. Til að byrja með er áætlað að hækkunin nái til yfir 60 þúsund einstaklinga og kosti 5 milljarða króna árlega, en sú tala getur sveiflast mikið á milli ára og orðið „mun meiri“ svo vitnað sé til frumvarpsins sjálfs. Eru þá ótalin áhrif á önnur útgjöld ríkissjóðs, en atvinnuleysisbætur hafa til að mynda oftast tekið sömu hækkunum og greiðslur almannatrygginga. Varnaðarorð koma víða að Þetta sjáum og vitum við í Sjálfstæðisflokknum, en líka stærstu samtök atvinnurekenda, launafólks og sérfræðingar fjármálaráðuneytis Daða Más Kristóferssonar sem hafa í umsögnum sínum varað við því að frumvarpið geti „aukið hættu á halla og skuldasöfnun“, dragi úr „möguleikum stjórnvalda til að bregðast við efnahagssveiflum“ og ógni „sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma þar sem framtíðargjöld aukast sjálfkrafa án þess að tekjur fylgi eftir eða mat fari fram á heildaráhrifum“. Í umsögn fjármálaráðs, sem starfar sjálfstætt samkvæmt lögum um opinber fjármál og er ætlað að tryggja að fram fari hlutlægt mat á stefnumörkun stjórnmála í opinberum fjármálum, er sérstaklega varað við málinu. Fjármálaráð getur þess að hér sé „um grundvallarbreytingu á fjármögnun almannatryggingakerfisins að ræða og ætla má að hún geti haft veruleg áhrif á sjálfbærni opinberra fjármála til framtíðar.“ Þá bendir fjármálaráð réttilega á að vísitölutengingar ríkisútgjalda geri baráttu við verðbólgu erfiðara en ella. Ósjálfbærar launahækkanir hafa lengi staðið íslensku efnahagslífi fyrir þrifum og með lögfestingunni væri verið að dreifa áhrifum þeirra á stóran hluta ríkisfjármálanna, þvert á yfirlýsta stefnu forsætisráðherra. Lagabreytingar ekki þörf til að vænka hag bótaþega Það sætir ekki sérstakri furðu minni að Flokkur fólksins skuli beita sér fyrir málinu - út á það voru þau kosin. Undirrituðum finnst hins vegar óskiljanlegt að Samfylkingin og Viðreisn, undir forystu tveggja hámenntaðra hagfræðinga skuli ætla að hleypa málinu í gegn. Hingað til hefur engum ábyrgum stjórnmálaflokki dottið þetta í hug. Þessi aðför að sjálfbærni ríkisfjármálanna er því í boði Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Í stað þess að ná stjórn á ríkisfjármálunum eins og forsætisráðherra sagðist ætla að gera, er stefnt að stjórnleysi þeirra. Þetta er líka algjörlega að ófyrirsynju. Það eru engin rök fyrir því að lögfesta reglu sem þessa ef traust væri innan ríkistjórnarinnar um að gera það sem hún segist ætla að gera: að útrýma fátækt og lyfta greiðslum til tekjulægstu hópanna. Sem fyrr væri ríkisstjórninni fullkomlega frjálst að hækka þessar greiðslur í samræmi við það sem efnahagsaðstæður leyfa. Það hefur enda verið stefna stjórnvalda hingað til og hafa greiðslur almannatryggingakerfisins hækkað tvöfalt á við verðlag frá aldamótum og 18% meira en laun. Til viðbótar við bein áhrif til hækkunar á stórum hluta ríkisfjármálanna mun breytingin einnig hafa áhrif á vinnumarkaðinn og atvinnuþátttöku, því með frumvarpinu er dregið úr hvata fólks til að taka þátt á vinnumarkaði samanborið við að þiggja bætur. Kjör vinnandi fólks munu smám saman rýrna Í því sambandi hefur fjármálaráð bent á að „það er ekkert gólf fyrir launahækkanir fólks á vinnumarkaði sambærilegt við það sem nú er lagt til að verði lagt undir hækkanir greiðslna almannatrygginga.“ Þetta þýðir að kjör vinnandi fólks sem standa undir bótakerfinu með skattgreiðslum sínum munu smám saman rýrna samanborið við þá sem reiða sig á vinnu þeirra sér til framfærslu. Það má aldrei verða svo á Íslandi að það borgi sig ekki að vinna. Því þegar öllu er á botninn hvolft eru það sjálfbær og stöðug ríkisfjármál, lágir skattar og frelsi til athafna sem ýtir undir öflugun vinnumarkað. Verðmætasköpun hans er forsenda lífskjara allra í samfélaginu – líka þeirra sem þurfa að reiða sig á almannatryggingakerfið sér til framfærslu. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og situr í velferðarnefnd Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Sigurður Örn Hilmarsson Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun