Það er pláss fyrir einn aldraðan einstakling í stofunni hjá mér Steinunn Þórðardóttir skrifar 7. febrúar 2026 08:01 Eins og komið hefur fram í umræðunni undanfarna daga hefur staða Landspítalans aldrei verið verri. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaraðstigi alla daga í rúmt ár. Sífellt eru ný met slegin í fjölda þeirra sem liggja á bráðamóttökunni og komast hvorki lönd né strönd. Fólk hefur verið vistað í bílskýlum og fundarherbergjum, gluggalausum margbýlum, á göngum og víðar. Enn hefur ekki tekist að setja lausn þessa vanda í þann forgang sem alvarleiki hans krefst. Það þarf að setja neyðaráætlun í gang, sambærilegt því sem gert var í COVID faraldrinum, og bregðast við án frekari tafa. Á meðan bráðamóttakan er stappfull upp í rjáfur fjölgar einnig þeim eldri einstaklingum sem liggja á legudeildum Landspítalans, hafa lokið þar meðferð en þurfa að bíða vikum eða mánuðum saman eftir hjúkrunarrými. Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala skýrði frá því á Vísi þann 29. janúar s.l. að nýtt met hefði verið slegið í þessum efnum, en yfir hundrað einstaklingar bíða nú innan veggja Landspítalans eftir hjúkrunarrými. Á sama hátt og á bráðamóttökunni hefur þessi tala farið síhækkandi á undanförnum árum, þrátt fyrir stöðugar ábendingar og neyðarköll frá spítalanum um að staðan sé ósjálfbær. Í minnisblaði Landspítalans til heilbrigðisráðuneytisins nú í byrjun árs eru hafðar uppi hugmyndir um að bregðast við vandanum með því að tvímenna tímabundið í herbergjum íbúa hjúkrunarheimila. Þessi hugmynd verður að teljast með ólíkindum. Eigum við að halda áfram að ýta þessum vanda á undan okkur í stað þess að horfast loksins í augu við hann? Vandinn er nú kominn á óbærilegt stig á bráðamóttökunni og legudeildum Landspítala. Er þá vænlegt að flytja hann út á hjúkrunarheimilin líka, í stað þess að bregðast við og lagfæra stöðuna? Í þessu samhengi ber að halda því til haga að hjúkrunarheimili eru heimili þeirra sem þar búa og því lítill munur á því að leggja ókunnugt fólk inn á herbergi íbúa hjúkrunarheimila og á herbergi á öðrum heimilum í landinu. Er næsta skref mögulega að leggja aldrað fólk inn á heimili landsmanna almennt? Mér sýnist að ég eigi pláss fyrir a.m.k. einn aldraðan einstakling í stofunni hjá mér. Því ber að fagna að heilbrigðisráðherra tali nú tæpitungulaust um skort á hjúkrunarrýmum, sem er uppsafnaður vandi til margra ára. Því ber líka að fagna að stjórnvöld ætli að gera stórátak í þessum efnum, samhliða uppbyggingu þjónustu við eldra fólk í heimahúsum. Á sama tíma verður að bregðast sérstaklega við þrengslunum á Landspítalanum. Það er óhugsandi að spítalinn geti tekið á sig 4 milljarða aðhaldskröfu við þessar aðstæður. Húsnæði bráðamóttökunnar er hannað fyrir 36 sjúklinga, ekki 100. Starfsemi hennar getur ekki farið fram við óbreyttar aðstæður í a.m.k. 4 ár í viðbót þar til nýi spítalinn opnar. Legudeildarrými spítalans eru líka of fá, óháð útskriftarvandanum sem hann glímir nú við og leggst ofan á þrengslin. Í nýjustu skýrslu OECD um stöðu íslensks heilbrigðiskerfis kemur fram að Ísland er með helmingi færri sjúkrarúm en meðaltalið í Evrópusambandinu. Það er því ekki nóg að fjölga hjúkrunarrýmum, það þarf að horfa á kerfið í heild, bæði hvað varðar húsnæði og mannafla. Gera þarf áætlanir um innviðauppbyggingu heilbrigðiskerfisins út frá raunverulegri þörf samfélagsins. Hefja þarf endurreisn þess af myndugleik, enda hafa landsmenn ítrekað sett heilbrigðiskerfið í fyrsta sæti þegar kemur að þeim málaflokkum sem við viljum setja í forgang. Höfundur er formaður Læknafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Þórðardóttir Landspítalinn Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar